Fréttir

Davíð nældi í brons í kúluvarpi - Helgi setti nýtt Íslandsmet í langstökki

Davíð Jónsson, Ármanni, vann í dag til bronsverðlauna á Evrópumeistaramóti fatlaðra í frjálsíþróttum sem fram fer í Stadskanaal í Hollandi. Davíð opnaði daginn með nýju Íslandsmeti í fyrsta kasti þegar hann varpaði kúlunni 11,02 metra. Hans lengst kast í dag...

Helgi opnar daginn í spjótkasti

Í dag fer fram fjórði keppnisdagur á EM fatlaðra í frjálsum í Hollandi og er það Helgi Sveinsson sem opnar daginn þegar hann keppir í spjótkasti í flokki F42 kl. 10:15 að íslenskum tíma.Í mörg horn verður að líta en...

Helgi tók silfrið í spjótinu - setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet

Helgi Sveinsson var rétt í þessu að vinna til silfurverðlauna á EM fatlaðra í frjálsíþróttum þegar hann kastaði spjótinu 46,52 metra í flokki F42. Fyrr í mánuðinum kastaði Helgi 35,48 metra á Íslandsmóti ÍF svo um risavaxna bætingu er að...

Matthildur komst ekki í úrslit í 100m hlaupi

Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir hefur lokið keppni á EM fatlaðra í Hollandi en áðan keppti hún í undanrásum í 100m hlaupi sem var hennar síðasta grein á mótinu. Matthildur kom í mark á tímanum 15,89 sek. Besti tími Matthildar og Íslandsmet...

Ingeborg fimmta í kringlunni

Ingeborg Eide Garðarsdóttir, FH, hafnaði áðan í fimmta sæti í kringlukasti á EM fatlaðra í frjálsum sem nú fer fram í Stadskanaal í Hollandi. Ingeborg bætti sig mikið í greininni, kastaði lengst 16,31 metra.Fyrsta kast Ingeborgar var 13,59m, annað kastið...

Þriðji keppnisdagur á EM - Hulda byrjar í kúluvarpi

Í dag er þriðj keppnisdagur á EM fatlaðra í Hollandi og Hulda Sigurjónsdóttir opnar daginn fyrir Íslands hönd þegar hún keppir í kúluvarpi í flokki F20, flokki þroskahamlaðra. Alls 12 keppendur eru skráðir til leiks í kúluvarpinu hjá Huldu svo...

Hulda bætti Íslandsmetið um 4 sentimetra

Hulda Sigurjónsdóttir var rétt í þessu að bæta Íslandsmetið í kúluvarpi á EM í Stadskanaal í flokki F20 kvenna en hún varpaði kúlunni 9,04 metra. Hennar gildandi Íslandsmet var 9,00 metrar en það setti hún fyrr í þessum mánuði á...

Matthildur stórbætti tímann sinn en missti naumlega af úrslitum

Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir stórbætti tímann sinn í 200m hlaupi F37 á EM í Stadskanaal í dag þegar hún kom í mark á tímanum 32,51 sek. Tíminn hefði verið nýtt Íslandsmet en vindur var of mikill eða +2,4 m/s og því...

Fyrstu verðlaun Íslands í hús - Matthildur þriðja í langstökki

Ísland hefur unnið til sinna fyrstu verðlauna á EM fatlaðra í frjálsum sem nú fer fram í Stadskanaal í Hollandi. Það var Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir sem hafnaði í 3. sæti í langstökki kvenna í flokki F37 er hún stökk lengst...

EM Holland: Dagur 3

Þá er þriðja keppnisdegi á EM fatlaðra í frjálsum lokið í Stadskanaal í Hollandi og í sarpinn söfnuðust tvö ný Íslandsmet og bronsverðlaun. Hulda Sigurjónsdóttir bætti fyrst Íslandsmetið í kúluvarpi F20 kvenna er hún varpaði kúlunni 9,03m og bætti svo...

Baldur og Ingeborg keppa í dag

Í dag eru það Baldur Ævar Baldursson og Ingeborg Eide Garðarsdóttir sem verða í sviðsljósinu á EM fatlaðra í Stadskanaal. Kl. 09:30 að íslenskum tíma keppir Baldur í kúluvarpi og er það hans síðasta grein á mótinu og kl. 10:00...

Ingeborg bætti Íslandsmetið um 59 sentimetra

Ingeborg Eide Garðarsdóttir hafnaði í 8. sæti í spjótkasti kvenna í dag á EM fatlaðra í Stadskanaal þegar hún bætti Íslandsmetið í flokki F37 um heila 59 sentimetra. Fyrra metið var frá 9. júní síðastliðnum þegar Ingeborg kastaði slétta 15m...

Opnunarhátíð EM lokið í Hollandi - mótið hefst í dag!

Evrópumeistaramót fatlaðra í frjálsíþróttum hefst í Hollandi í dag en setningarathöfn mótsins fór fram í gærkvöldi. Ísland á sex keppendur á mótinu og aldrei áður í sögu ÍF hefur jafn fjölmennur hópur farið á Evrópumeistaramót í greininni. Á EM eru...

Fyrsta keppnisdegi lokið í Hollandi

Þá er fyrsta keppnisdegi lokið á EM fatlaðra í Hollandi. Besta árangri dagsins náði Helgi Sveinsson í 100m hlaupi í flokki T42 þegar hann kom í mark á tímanum 14,41 sek. Þessi tími skilaði Helga í fjórða sæti en aðstæður...

Minningarmót Harðar Barðdal í Hraunkot 26. júní

Þann 26. júní næstkomandi fer fram minningarmót Harðar Barðdal í pútti en þetta er þriðja árið í röð sem mótið fer fram. Mótið verður haldið 26. júní kl. 18:00 í Hraunkoti, æfingarsvæði golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði.Veitt verða verðlaun fyrir þrjú...

Dagskrá EM hópsins í Hollandi

Íslenski frjálsíþróttahópurinn er nýlentur í Hollandi þar sem sex fatlaðir íþróttamenn verða fulltrúar Íslands á EM fatlaðra í frjálsum. Hér að neðan gefur að líta keppnisdagskrá íslenska hópsins en keppnin hefst þann 24. júní næstkomandi.(hollenskur tími - 2 tímum á...

Sumaræfingar í sundi

Vegna undirbúnings íslenska sundfólksins fyrir Ólympíumót fatlaðra í London 2012 munu landsliðaþjálfarar ÍF frá og með 4. júlí n.k. standa fyrir sumaræfingum í Ásvallalaug í Hafnarfirði.Æfingar þessar eru opnar þeim einstaklingum sem tekið hafa þátt í landsliðsverkefnum ÍF undangengna mánuði...

EM hópurinn leggur af stað í fyrramálið

Á morgun heldur vaskur hópur af stað til Hollands þar sem sex fatlaðir frjálsíþróttamenn munu keppa fyrir Íslands hönd á EM fatlaðra. Mótið fer fram í Stadskanaal og hefst keppnin þann 24. júní n.k. þar sem langstökkvarinn Baldur Ævar Baldursson...

Ólympíumót fatlaðra 2012

Íslandi hefur nú verið úthlutað "kvóta" vegna Ólympíumótsins í London 2012 en mótið verður sett með tilheyrandi glæsibrag þann 29. ágúst nk. IPC - Alþjóðaólympíuhreyfing fatlaðra gaf löndum frest til 20. maí til að ná "kvóta" í hverri grein. Miðað...

Myndband frá Íslandsmótinu og bikarkeppninni

VIð höfum nú tekið saman nokkrar klippur frá Íslandsmótinu í frjálsum og bikarmótinu í sundi en bæði mótin fóru fram síðastliðinn laugardag. Íþróttamenn úr báðum greinum sýndu sparihliðarnar og Íslandsmetin féllu í bunkum.