Fréttir
Landsbankamót ÍRB 12.-14. maí
Dagana 12.-14. maí næstkomandi verður Landsbankamót ÍRB í sundi haldið í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. Mótið er með IPC-vottun.
Dagana 27. – 30. apríl 2017 stendur yfir opna Breska meistaramót fatlaðra í sundi í Sheffield
Tveir sundmenn munu keppa fyrir Íslands hönd og eru þeir mættir til Englands þar sem þeir munu einnig hljóta alþjóðlega flokkun. Sundmennirnir eru Róbert Ísak Jónsson og Þórey Ísafold Magnúsdóttir og með keppendunum fóru Tomas Hajek þjálfari og Kolbrún Sjöfn...
Hvað er INAS?
Fljótt svarað eru INAS heimssamtök íþróttamanna sem lifa við þroskahömlun. Á ensku stendur skammstöfunin INAS fyrir The International Federation for Inttellectual Disability Sport.
Átta ný Íslandsmet á ÍM50
Fimm Íslandsmet litu dagsins ljós á seinni keppnisdegi Íslandsmóts Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 50m laug en þar voru á ferðinni Már Gunnarsson sundmaður ÍRB/Nes úr Reykjanesbæ, Thelma B. Björnsdóttir úr ÍFR og Kristín Þorsteinsdóttir sundkona Ívars frá Ísafirði.
Þrjú ný Íslandsmet á fyrri keppnisdegi ÍM50
Fyrri keppnisdagurinn á Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 50m laug var að ljúka en á þessum fyrri hluta voru sett þrjú ný Íslandsmet en þar voru á ferðinni Már Gunnarsson sundmaður ÍRB/Nes úr Reykjanesbæ og Kristín Þorsteinsdóttir sundkona Ívars...
Fylkir og Aðalheiður hlutu gullmerki ÍF
Lokahóf Íslandsmóta Íþróttasambands fatlaðra fór fram í Gullhömrum í Grafarvogi sunnudagskvöldið 2. apríl. Við hófið voru þau Fylkir Þór Guðmundsson og Aðalheiður Gísladóttir frá Eik sæmd gullmerki Íþróttasambands fatlaðra.
Kolfinna tvöfaldur Íslandsmeistari síðustu helgi
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í borðtennis fór fram í TBR-Húsinu í Reykjavík föstudaginn 31. mars og laugardaginn 1. apríl. Kolfinna Bjarnadóttir úr HK landaði tveimur titlum á mótinu þegar hún varð Íslandsmeistari í Opnum flokki sem og kvennaflokki.
Mótaskrá ÍM50 8.-9. apríl
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 50m laug fer fram í Laugardalslaug dagana 8.-9. apríl næstkomandi. Synt verður inni á milli mótshluta SSÍ.
Nes Íslandsmeistari í sveitakeppni í 1. deild
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sveitakeppni í boccia fór fram í Laugardalshöll helgina 1.-2. apríl. Nes-1 varð Íslandsmeistari í 1. deild en sveitina skipuðu þeir Konráð Ragnarsson, Arnar Már Ingibergsson og Rangar Lárus Ólafsson. Nes lét ekki þar við liggja heldur...
Íslandsmótinu lokið
Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra í borðtennis, boccia og lyftingum lauk í dag. Einnig var keppt í fyrsta sinn í Nútímafimleikum og áhaldafimleikum á Íslandsmótinu.
Ávarp formanns fyrir Íslandsmót ÍF 2017
Ágætu félagar Það er mér heiður að fá að ávarpa ykkur sem nýkjörinn formaður ÍF.
ÍF, Rúmfatalagerinn, Bláa Lónið og Valitor saman næstu fjögur árin!
Íþróttasamband fatlaðra endurnýjaði á Sambandsþingi sínu þrjá nýja samstarfs- og styrktarsamninga við Rúmfatalagerinn, Bláa Lónið og Valitor. Rúmfatalagerinn og Valitor hafa verið samstarfsaðilar ÍF um árabil og hin síðari ár hefur Bláa Lónið komið inn af miklum krafti í samstarfið. ...
Íslandsmót ÍF í sundi 8. og 9. apríl
Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 50m. laug fer fram í Laugardalslaug dagana 8.-9. apríl næstkomandi. Synt verður á milli mótshluta hjá Sundsambandi Íslands á ÍM50.
Tímaseðill Íslandsmóta ÍF 2017
Tímaseðill Íslandsmóta ÍF í sveitakeppni í boccia, lyftingum, borðtennis, áhaldafimleikum og nútímafimleikum 1.-2. apríl 2017: Laugardalshöll, Íþróttahús ÍFR og TBR-húsið
Ávarp Sveins Áka fráfarandi formanns á Sambandsþingi ÍF 2017
Varaforseti ÍSÍ, Helga Steinunn Guðmundsdóttir, formaður ITR, heiðursfélagi ÍF, Ólafur Þór Jónsson, samstarfsaðilar, ágætu þingfulltrúar, gestir og vinir.
Vetrarleikum SO 2017 lokið
Alþjóðavetrarleikar Special Olympics sem hófust 18. mars lauk með lokahátíð 25. mars. Nína Margrét Ingimundardóttir og Júlíus Pálsson voru fyrstu Íslendingarnir til að keppa í parakeppni, karla og kvenna en þau kepptu einnig í einstaklingskeppni, level 2.
Heiðursmerkjahafar á sambandsþingi ÍF 2018
Sambandsþing Íþróttasambands fatlaðra fór fram á Radisson Blu Hóteli Sögu um síðastliðina helgi. Við þingið lét Sveinn Áki Lúðvíksson af störfum sem formaður ÍF frá 1996 og við starfanum tók Þórður Árni Hjaltested.
Þórður Árni nýr formaður Íþróttasambands fatlaðra
Sveinn Áki hlaut æðsta heiðursmerki ÍF og varð heiðursfélagi sambandsins Þórður Árni Hjaltested var í dag kjörinn nýr formaður Íþróttasambands fatlaðra á 18. Sambandsþingi ÍF sem fram fór á Radisson Blu Hóteli Sögu í Reykjavík. Við þingsetningu var Sveinn Áki sæmdur...
Sveinn Áki heiðursfélagi ÍF
Sambandsþing Íþróttasambands fatlaðra var sett á Radisson Blu Hóteli Sögu í Reykjavík í dag þar sem fráfarandi formaður ÍF, Sveinn Áki Lúðvíksson, var gerður að heiðursfélaga ÍF. Með því er Sveinn Áki aðeins annar núlifandi heiðursfélagi sambandsins ásamt Ólafi Þór...
Sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra á Laugarvatni 2017
Umsóknareyðublað fyrir Sumarbúðir ÍF á Laugarvatni vikurnar 16. - 23. júní og 23. - 30. júní 2017 er nú aðgengilegt hér.