Laugardaginn 7. nóvember næstkomandi munu Háskólinn í Reykjavík, Íþróttasamband fatlaðra og Allir með verkefnið standa saman að námskeiði og vinnustofu sem ber heitið „Allir með: Hvað getum við hin gert?“ Viðburðurinn fer fram í Háskólanum í Reykjavík og verður frá kl. 09.30-16:00 þann daginn. Boðið verður upp á veitingar á viðburðinum.
Skráning er hafin og er hægt að skrá þátttöku hér.
Íþróttaþátttaka getur skipt sköpum fyrir einstaklinga með fatlanir. Hún styrkir félagsleg tengsl, eykur sjálfstæði í daglegu lífi, bætir líkamlega heilsu og byggir upp færni sem nýtist langt út fyrir æfingasalinn. En hvernig búum við til æfingaumhverfi þar sem þetta gerist í raun? Við bjóðum foreldrum, þjálfurum og stjórnarfólki í íþróttafélögum, því þetta er á okkur öllum að vinna að þessum málum og gott er að við séum öll að stefna í sömu átt.
Hvað verður fjallað um?
- Af hverju íþróttir? Hvað rannsóknir segja um félagsleg tengsl og andlega heilsu, sjálfstæði, líkamlega heilsu, sjálfræði, valdeflingu og atvinnuþátttöku.
- Algild hönnun náms (UDL): Einföld nálgun sem miðar þjálfun við einstaklinginn – og gagnast öllum iðkendum.
- Æfingaumhverfi: Útilokun, aðgreining, samþætting og inngilding – kostir og gallar ólíkra leiða fyrir iðkandann og félagið.
Fyrirkomulag dagsins
- Stuttar kynningar um hvernig fræðin segja að best sé að standa að málum í afmörkuðum þáttum
- Umræður í hópum þar sem foreldrar, þjálfarar og stjórnarfólk deila reynslu og læra hvert af öðru.
- Hóparnir kynna stutt sínar umræður, hver hópur kynnir fyrir hinum hópunum hvað þeim finnst
- Næsti þáttur tekinn fyrir þangað til allir þættir eru kláraðir
Niðurstöðurnar fara áfram
Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) tekur þátt í deginum og mun taka niðurstöður og tillögur hópanna áfram. Þín rödd getur því haft raunveruleg áhrif á íþróttastarf fyrir einstaklinga með fatlanir á Íslandi.










