YAP Leikskólafimi 2 - 6 ára Boxin seldust hratt upp en fáanleg aftur núna


YAP leikskólafimi 2 - 6 ára er nú aftur fáanlegt á skrifstofu ÍF.     Áhugasamir geta sent fyrirspurn eða pantanir á annak@ifsport.is 

Snemmtæk íhlutun getur skipt sköpum á mörgum sviðum, ekki síst ef börn þurfa á einhverskonar stuðningi að halda. 

Fræðsluefnið YAP Leikskólafimi 2-6 ára gefur kennurum verkfæri til markvissrar hreyfiþjálfunar. Myndræn lýsing og skýr texti, skapar tækifæri til að aðlaga æfingabraut í stór eða lítil rými.   Horft er til æfinga fyrir mismunandi aldurshópa en rannsóknir sýna að hvert ár skiptir máli, því fyrr sem byrjað er, þeim mun meiri líkur á árarangri. 

YAP verkefnið byggir á 8 þáttum; Grunnfærni, ganga/hlaupa, fanga/grípa,  hopp/jafnvægi, kasta, slá, sparka, sértæk hreyfifærni.

Íslenska fræðsluefnið sem verið er að kynna núna byggir á þætti 1, grunnfærni. Efnið kemur í sérhönnuðu boxi sem inniheldur lituð spjöld sem eru útbúin fyrir mismunandi aldurshópa.  Verð á boxi er kr. 12.900.

Á Íslandi hófst innleiðing YAP árið 2015 og árangurinn er stórkostlegur, þar sem markviss innleiðing hefur farið fram. Jákvæður árangur snýr ekki aðeins að bættri hreyfifærni sem er lykilþáttur.. Kennarar hafa ítrekað staðfest jákvæð áhrif á sjálfstraust, félagsfærni, málþroska og fleiri þætti sem skipta máli í daglegu lífi barna. YAP verkefnið hefur verið nýtt til samþættingar verkefna í daglegri kennslu og til að efla samskipti barna sem tala mismunandi tungumál. 

Ásta Katrín Helgadóttir,íþróttakennari á heilsuleikskólanum Skógarási, Ásbrú og Sigurlín Jóna Baldursdóttir, íþróttakennari á leikskólanum Jötunheimum, Selfossi, hafa unnið með Special Olympics að Íslandi að innleiðingu YAP hreyfiþjálfunar í leikskóla. YAP (young athlete project) hefur að markmiði að efla hreyfifærni ungra barna þar sem sérstakur markhópur er börn með stuðningsþarfir. Aðgengi að YAP fræðsluefni er ókeypis á síðu Special Olympics International. Efnið er unnið af sérfræðingum innan háskólans í Boston í samstarfi við fleiri aðila. 

Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu Íþróttasambands fatlaðra, Engjavegi 6 í Laugardal.