Íslandsmót ÍF í boccia fer fram á Selfossi 22. - 24. október 2021


Íslandsmót ÍF í boccia, einstaklings og sveitakeppni fer fram á Selfossi,  22. - 24. október 2021. Mótið er samstarfsverkefni ÍF og íþróttafélagsins Suðra á Selfossi.  Íslandsmótið í sveitakeppni sem átti að fara fram í apríl hefur verið fært til haustsins 

Sveitakeppni fer fram á föstudeginum og hefst kl. 0900.

Einstaklingskeppni fer fram laugardegi og sunnudegi og mótinu lýkur með lokahófi á Hótel Selfossi .

Ofeigur Ágúst Leifsson er verkefnastjóri mótsins f. h. Suðra og hann mun senda aðildarfélögum ÍF, nánari upplýsingar.

Það verður án efa mikið fjör á Selfossi í haust og bocciaiðkendur geta farið að hlakka til lokahófsins sem er hápunkturinn!