Skráning hafin á Íslandsmót ÍF í borðtennis


Íslandsmót ÍF í borðtennis 2021 fer fram í íþróttasal ÍFR að Hátúni þann 8. maí næstkomandi. Skráningargögn hafa þegar verið send til aðildarfélaga ÍF.


Skráning stendur til 31. mars næstkomandi og skal berast á if@ifsport.is með cc á helgig@landsbankinn.is


Nánari dagskrá mótsins verður send út síðar.
Ef einhverja vantar skráningargögn má setja sig í samband við if@ifsport.is