Ertu með ábendingu um knattspyrnufélag eða þjálfara sem gefur öllum börnum tækifæri?


Íþróttasamband fatlaðra og Special Olympics á Íslandi er að hefja þátttöku í 3 ára samstarfsverkefni  6 landa þar sem meginmarkmið er að efla íþróttaþáttöku barna með sérþarfir. Markhópur er 6 til 12 ára.

Megináhersla er á tvær íþróttagreinar, körfubolta og knattspyrnu en Ísland mun tengja verkefnið fleiri greinum. 

Leitað er eftir ábendingum um knattspyrnufélag og/eða þjálfara sem gæti haft áhuga á verkefninu 

Ábendingar óskast sendar á annak@ifsport.is fyrir 20. janúar 2020.    .

 

Meginmarkmið er að stuðla að aukinni þátttöku barna með sérþarfir í íþróttastarfi og þá út frá þeim forsendum sem taldar eru henta best fyrir börnin. Stundum hentar að setja upp sértilboð en margir vilja frekar taka þátt í almennum æfingum. Þar er þjálfari í lykilhlutverki og þjálfarar sem ná að virkja börnin og láta þau njóta styrkleika sinna í margbreytilegum hópi eru dýrmætir liðsmenn. 

Knattspyrna er vinsælasta íþróttagreinin á Íslandi og KSÍ hefur í mörg ár verið í samstarfi við ÍF og Special Olympics á Íslandi vegna Íslandsleika í knattspyrnu, þar sem eldri iðkendur taka þátt. Þá hefur KSÍ einnig verið að efla fræðslu fyrir þjálfara sem taka á móti margbreytilegum hópi. Þrátt fyrir það er mjög mikið óunnið hvað varðar virka þátttöku t.d. barna með  mismunandi fötlun eða frávik og mikilvægt að allir sýni ábyrgð og vinni saman að því að gefa öllum börnum jöfn tækifæri.