Global Games 2023 í Vichy í Frakklandi


Næstu Global Games fara fram í Vichy í Frakklandið árið 2023 en Global Games eru heimsleikar þroskahamlaðra á vegum Virtus Sport sem áður bar nafnið INAS-Fid.


Síðustu leikar fóru fram í Brisbane í Ástralíu með miklum ágætum þar sem Ísland átti fjóra vaska fulltrúa en þeir voru Jón Margeir Sverrisson fyrsti keppandi Íslands á Global Games í hjólreiðum. Hulda Sigurjónsdóttir frjálsar, Róbert Ísak Jónsson og Þórey Ísafold Magnúsdóttir sem kepptu í sundi.


Í gær þann 6. september voru 1000 dagar fram að leikunum sem fara munu fram 4.-10. júní í Vichy í Frakklandi. Global Games fara fram fjórða hvert ár og eru þá á oddaárinu fyrir Paralympics.


#GG2023

Facebook-síða Virtus