Rising Phoenix er stórbrotin heimildarmynd um Paralympics


Tokyo2020 - Ólympíumót fatlaðra eða Paralympics, átti að hefjast með setningu leikanna í gær, en vegna Covid-19 var þeim frestað til næsta sumars eins og Ólympíuleikunum. Löng hefð er fyrir því að Paralympics séu haldnir í beinu framhaldi af Olympics eða Ólympíuleikum eins og við nefnum leikanna á íslensku. Um er að ræða 45 daga samfellda íþróttahátíð í þeim borgum sem taka að sér að halda þessa leika, Olympics og Paralympics.


Í tilefni af 30 ára afmæli International Paralympic Committee – IPC 2019 var ákveðið að vinna að gerð heimildarmyndar um sögu Paralympics allt frá upphafi þeirra þar sem Sir. Ludwig Guttmann taugalæknir fór að nýta íþróttir til endurhæfingar fyrir mænuskaðaða einstaklinga. Segja má að íþróttaleikar sem haldnir eru ár hvert í Stoke-Mandewill í Englandi séu upphafið og sem fyrst voru haldn­ir fyr­ir nokkra fatlaða her­menn skömmu eft­ir lok síðari heims­styrj­ald­ar (1948). Fyrstu formlegu Paralympic leikarnir voru haldnir í Róm 1960.


Myndin Rising Phoenix er að mínu mati stórbrotin heimildarmynd um sögu Paralympics leikanna og endurspeglar þann kraft og þá orku sem leysist úr læðingi þegar fatlaðir íþróttamenn hvaðanæva úr heiminum koma saman og ætla að gera sitt besta.


Ég hvet alla til þess að gefa sér tíma til að horfa á þessa mynd á Netflix, hún skilur eftir sig sterk hughrif.


Með íþróttakveðju,
Þórður Á. Hjaltested, formaður ÍF