Tíu Íslandsmet í Krikanum! Ármann Íslandsmeistari


Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra fór fram í Kaplakrika um helgina en mótið fór fram inni á Meistaramóti Íslands hjá Frjálsíþróttasambandinu. Mótið fór einkar vel fram í sterkri framkvæmd og umgjörð hjá FH. Alls féllu tíu ný Íslandsmet á Íslandsmóti ÍF þar sem frjálsíþróttakonan Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir frá ÍR var í feiknaformi og setti fjögur ný met! Ármann varð Íslandsmeistari í liðakeppninni en liðið vann til alls 18 verðlauna um helgina.


Gaman var að sjá kempurnar Hauk Gunnarsson og Jón Odd Halldórsson mætta aftur til leiks en þessir höfðingjar voru á sínum tíma á meðal fremstu frjálsíþróttamanna fatlaðra í heiminum. Jón Oddur lagði afreksskóna á hilluna 2008 eftir þátttöku sína á Paralympics sem fram fóru í Peking í Kína. Báðir eru þeir margverðlaunaðir íþróttamenn og létu sitt ekki eftir liggja á mótinu og fóru heim drekkhlaðnir verðlaunum.


Íþróttasamband fatlaðra vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra þeirra sem gerðu mótið jafn veglega úr garði og raun bar vitni. „Mótið tókst mjög vel til og það var gaman að sjá hve margir voru að bæta sig enda vart annað hægt í jafn öflugri aðstöðu og FH-ingar eru að bjóða upp á í Kaplakrika,“ sagði Egill Þór Valgeirsson formaður frjálsíþróttanefndar ÍF.


Íslandsmet helgarinnar:


60m hlaup kvenna T 35-38
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir - 9,45 sek.


Kúluvarp kvenna F 35-38
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir - 9,43 m.


200m hlaup kvenna F 35-38
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir - 31,49 sek.


Langstökk kvenna F 35-38
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir - 4,21 m.


400m hlaup karla T 11
Patrekur Andrés Axelsson - 1;00,83 mín.


200m hlaup karla T 11
Patrekur Andrés Axalsson - 26,98 sek.


60m hlaup karla T 11
Patrekur Andrés Axelsson - 8,02 sek.


Kúluvarp kvenna F 20
Guðrún Hulda Sigurjónsdóttir - 10,33 m.


800m hlaup karla T 35-38
Michel Thor Masselter - 3:09,54 mín.


1500m hlaup karla T 35-38
Michel Thor Masselter - 6:35,84 mín.


Úrslit mótsins


Mynd/ Jón Björn - Patrekur á fleygiferð fyrir Ármann en með honum er aðstoðarhlauparinn Helgi Björnsson.