Hilmar kveður Slóvakíu með þrenn gullverðlaun og efstur á EC-lista!


Hilmar Snær Örvarsson hefur lokið keppni í Slóvakíu en í morgun vann hann sín þriðju gullverðlaun við mótið sem er hluti af Evrópumótaröð IPC. Hilmar kom fyrstur í mark í svigkeppninni í morgun með heildartímann 1:50,49 mín. Hilmar vann gull báða svigdagana og einn stórsvigsdaginn en á fyrsta degi hafnaði hann í 2. sæti í stórsvigi.


Eftir öfluga frammistöðu í Jasná í Slóvakíu er Hilmar nú efstur í bæði svigi og stórsvigi á Evrópumótaröðinni. Einar Bjarnason sem hefur verið með Hilmari á mótinu ytra sagði að Hilmar hefði þurft að hafa mikið fyrir gullinu í dag. „Hann var næstum dottinn í tvígang í seinni ferðinni vegna aðstæðna þar sem snjórinn var mjög mjúkur og blautur. Líkamlegur styrkur hans kom vel að notum þarna þar sem hann stóð af sér bæði höggin.”


Hilmar og Einar eru væntanlegir aftur til Íslands á morgun 1. febrúar en í lok febrúarmánaðar heldur Hilmar til Zagreb þar sem lokamótið í Evrópumótaröðinni mun fara fram.


Úrslit dagsins
 

Mynd/ Einar Bjarnason - Hilmar á verðlaunapalli í Slóvakíu í morgun.