Hilmar heldur áfram að rita skíðasöguna: Fyrsta gullið í stórsvigi!


Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson frá skíðadeild Víkings var rétt í þessu að vinna til sinna fyrstu gullverðlauna í stórsvigi á alþjóðlegu skíðamóti! Hilmar var með lokatímann 1:37.23 mín. og var rúmlega hálfri sekúndu á undan Slóvakanum Martin France sem hafði betur gegn Hilmari í stórsviginu í gær. Hilmar er staddur í Slóvakíu á Evrópumótaröð Alþjóða Ólympíuhreyfingar fatlaðra (IPC).


Með sigrinum í dag varð Hilmar fyrstur Íslendinga til þess að vinna gullverðlaun í stórsvigi á alþjóðlegu alpagreinamóti. Hilmar var annar eftir fyrri ferðina í morgun á tímanum 47,30 sek. en var eini skíðamaðurinn sem fór undir 50 sekúndur í seinni ferðinni er hann kom í mark á 49,93 sek. og með heildartímann 1:37,23 mín.


Hilmar hefur haft í nægu að snúast undanfarið og hefur stimplað sig rækilega inn sem einn af sterkustu svigmönnum heims í standandi flokki og er nú á hraðri uppleið upp styrkleikalistann í stórsvigi.


Næstu tvo daga taka við keppnir í svigi hjá Hilmari og svo í lok febrúarmánaðar keppir hann á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í Zagreb.

Úrslit dagsins


Efri mynd: Hilmar á verðlaunapalli með gullið sitt í Jasná og á neðri myndinni er hann ásamt Einari Bjarnasyni úr þjálfarateymi sínu sem skipað er ásamt honum Þórði Georgi Hjörleifssyni aðalþjálfara og Marko Spoljaric.