Tanya vann Sjómannabikarinn annað árið í röð


Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga fór fram í Laugardalslaug í dag þar sem Tanya Jóhannsdóttir vann besta afrek mótsins og hlaut þar með Sjómannabikarinn eftirsótta annað árið í röð! Tanya keppir í flokki S7 (hreyfihamlaðir) og hlaut 552 stig fyrir sundið sitt í 50m skriðsundi en stigaútreikningurinn er miðaður við heimsmet greinarinnar í hverjum fötlunarflokki fyrir sig.


Þetta árið var veðrið að stríða okkur og var Reykjanesbraut lokað í dag sem gerði það að verkum að sundmenn úr röðum Nes frá Reykjanesbæ áttu ekki kost á því að keppa og þeirra vitaskuld sárt saknað.

Tanya var ekki ein um að sýna góða takta í lauginni í dag því það gerði líka Snævar Örn Kristmannsson frá ÍFR en þar fer efnilegur 14 ára gamall sundmaður.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands var heiðursgestur við mótið í dag og sá um að veita keppendum þátttökuverðlaun og afhenti Sjómannabikarinn í lokin ásamt Þórði Árna Hjaltested formanni ÍF.

Takist sundmanni að vinna Nýársmótið þrjú ár í röð hlýtur hann Sjómannabikarinn til eignar en þetta árið er síðasta keppnisár hjá Tönyu þar sem hún verður 17 ára þetta árið og mótið aðeins fyrir 17 ára og yngri. Það verður því nýtt nafn ritað á Sjómannabikarinn á næsta ári og miðað við fjörið í lauginni þetta árið er ljóst að það verður hart barist á því næsta.

Mynd/ Tanya með sigurlaunin sín, sjálfan Sjómannabikarinn sem afhentur hefur verið á Nýársmóti ÍF allt frá árinu 1984. Frá vinstri eru Þuríður Harpa, Tanya og Þórður Árni.