Ólafur tók við gullmerki ÍSÍ


Í tengslum við 40 ára afmæli Íþróttasambands fatlaðra (ÍF) var ákveðið að sæma tvo starfsmenn ÍF Gullmerki ÍSÍ, þau Önnu Karólínu Vilhjálmsdóttur og Ólaf Magnússon. Bæði eiga þau yfir þrjátíu ára starf að baki í þágu íþrótta fatlaðra.


Anna Karólína fékk merkið sitt afhent í afmælishófi ÍF í maí sl. en þá var Ólafur fjarstaddur. Á Formannafundi ÍSÍ á dögunum var tækifærið nýtt og Ólafi afhent Gullmerki ÍSÍ.
Það var Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ sem afhentu Ólafi Gullmerki ÍSÍ og blómvönd.