Kynningarfundur Unified verkefna í dag


Í dag fer fram kynningarfundur á tækifærum sem skapast hafa í gegnum verkefni Special Olympics „Unifed sport" og „Unified schools“ sem byggir á blöndun og samfélagi án aðgreiningar.


Einnig verður  kynning á „Youth Summitt“ sem er leiðtogaþjálfun ungs fólks en Ísland mun taka þátt í „Youth Summitt“ í fyrsta skipti árið 2020. Ungt fólk fatlað og ófatlað kemur saman á ráðstefnum og vinnur að ýmsum verkefnum sem stuðla að samfélagi án aðgreiningar.  


Jenni Hakkinen sem stýrir þessum verkefnum Special Olympics í Evrópu mun kynna starfið og þau tækifæri sem geta skapast við innleiðingu „unified" í íþrótta- og skólastarfi.


Hér má nálgast viðburð kynningarfundarins á Facebook