Þrjár frjálsíþróttakonur á leið á HM í Dubai


Heimsmeistaramót fatlaðra í frjálsum íþróttum fer fram í Dubai dagana 7.-15. nóvember næstkomandi. Ísland teflir fram þremur keppendum á mótinu og að þessu sinni eru það þrjár öflugar frjálsíþróttakonur sem munu reyna fyrir sér á stóra sviðinu.


Keppendur Íslands á HM 2019:


Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, ÍR: langstökk, 100m hlaup og 200m hlaup - flokkur T og F37
Stefanía Daney Guðmundsdóttir, KFA/ Eik: langstökk, 400m hlaup - flokkur T og F20
Hulda Sigurjónsdóttir, Ármann: Kúluvarp - flokkur F20


Mótið stendur yfir dagana 7.-15. nóvember en það er Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir sem ríður fyrst á vaðið af íslensku keppendunum þann 10. nóvember þegar hún keppir í langstökki.


Mótið verður í beinni á netinu hjá Paralympic TV en eins mun verða vel greint frá mótinu á miðlum ÍF (ifsport.is, Facebook, Twitter og Instagram).


Fararstjóri og yfirþjálfari í ferðinni er Kári Jónsson annar tveggja yfirmanna landsliðsmála hjá ÍF, Ásmundur Jónsson nuddari og Margrét Grétarsdóttir þjálfari.


Efri mynd frá vinstri: Margrét, Bergrún og Stefanía
Neðri mynd: Hulda Sigurjónsdóttir