Íslandsmót ÍF í frjálsum í Kaplakrika 6.-7. júlí


Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í frjálsum íþróttum fer fram í Kaplakrika í Hafnarfirði dagana 6.-7. júlí næstkomandi.


Tengiliður ÍF vegna framkvæmdar á keppni fatlaðra er Egill Valgeirsson, formaður frjálsíþróttanefndar ÍF 847-0526 eða Hermann Þór Haraldsson 777-8101


Skráningu keppenda skal senda til if@ifsport.is eða á Egil Þór Valgeirsson egill_thor@hotmail.com  sem setur þær inn í mótaforritið Þór, sem þið finnið á heimasíðu FRÍ. Skráningarfrestur er til miðnættis Þriðjudaginn 2. Júlí.
Skorað er á forráðamenn félaga að virða skráningarfrest og fylla út lista keppenda á meðfylgjandi eyðublað


Skráningargögn hafa þegar verið send til aðildarfélaga ÍF. Þá sem vantar skráningargögn geta haft samband á if@ifsport.is