Alþjóðlegi Downs-dagurinn í dag


Í dag er Alþjóðlegi Downs-dagurinn. Félag áhugafólks um Downs-heilkenni stendur í tilefni af deginum að samkomu í veislusal Þróttar, Laugardal, milli kl. 17 og 19 í dag.


Af heimasíðu félags áhugafólks um Downs-heilkenni:

Sameinuðu þjóðirnar lýstu því formlega yfir árið 2011 að 21. mars væri alþjóðadagur Downs-heilkennis og með það að markmiði að auka vitund og minnka aðgreiningu. Dagsetningin er táknræn að því leiti að hún vísar til þess að Downs-heilkenni er orsakað af auka litning í litningi 21, þ.e. 3 eintök af litning 21 - 21.03.

Að venju munum við halda uppá daginn með samveru og gleði. Frábært tilefni til að hittast og gleðjast saman.

Kramhúsið heimsækir okkur og heldur uppi dansstemningu með trommum og kennslu. Að sjálfsögðu verða blöðrulistamenn á staðnum.

Hlökkum til að sjá sem flesta - allir velkomnir