Vorfjarnám 2019 þjálfaramenntun 1. og 2. stigs ÍSÍ


Vorfjarnám 1. og 2. stigs þjálfaramenntunar ÍSÍ hefst mánudaginn 11. febrúar næstkomandi. Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambnadi ÍSÍ hverju sinni.

Nám beggja stiga er allt í fjarnámi, engar staðbundnar lotur. Námið hefur verið afar vinsælt undanfarin ár og þátttakendur komið komið frá fjölda íþróttagreina. Námið veitir réttindi til íþróttaþjálfunar og jafnframt rétt til áframhaldandi náms til frekari réttinda.


Skráning er rafræn og þarf henni að vera lokið fyrir föstudaginn 8. febrúar. Rétt til þáttöku á 1. stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi. Til þátttöku á 2. stigi þarf að hafa lokið 1. stigi, hafa gilt skyndihjálparnámskeið og 6 mánaða starfsreynslu sem þjálfari.


Slóð á skráningu á bæði stig í vorfjarnámi og þjálfaramenntunar ÍSÍ 2019
Slóð á umfjöllun um þjálfaramenntun ÍSÍ


Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og aðra þjálfaramenntun ÍSÍ gefur Viðar Sigurjónsson í síma 5144000 og 8631399 eða á vidar@isi.is