Hilmar fjórði á HM


Skíðamaðurinn Hilmar Snær Örvarsson frá Skíðadeild Víkings lenti í dag í 4. sæti í svigi á heimsmeistaramótinu í alpagreinum en hann var aðeins sekúndubrotum frá því að komast á verðlaunapall. Hilmar hefur nú lokið keppni á HM sem fram fer í Slóveníu en hann hafnaði í 20. sæti í stórsvigi og 4. sæti í svigi eftir tvær stórglæsilegar ferðir í dag.


Hilmar var fimmti eftir fyrri ferðina en vann sig upp um eitt sæti í seinni ferðinni en þar bætti hann tíma sinn um 1,3 sekúndur frá fyrri ferð. Frakkinn Arthur Bauchet vann gullið, Svisslendingurinn Thomas Pfyl landaði silfri og Ástralinn Mitchell Bourley varð þriðji aðeins 28 sekúndubrotum á undan Hilmari.


Hilmar hóf ferðina á heimsbikarmóti í Zagreb í Króatíu þar sem hann vann til gullverðlauna í svigi og varð þar með fyrstur Íslendinga til að vinna sigur á heimsbikarmóti í sögunni. Á HM náði hann besta árangri sem íþróttamaður úr röðum fatlaðra á Íslandi hefur náð á heimsmeistaramóti í alpagreinum.


Til hamingju með árangurinn Hilmar, Þórður þjálfari og Skíðadeild Víkings.

Sjá seinni ferðina hjá Hilmari - hefst á 32.55 mín


Mynd/ Guðmundur Karl Jónsson - Hilmar Snær ásamt foreldrum sínum og Þórði þjálfara að lokinni keppni í Slóveníu í dag.