Snemmbær afreksþjálfun barna


Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir íþróttaráðstefnu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík fimmtudaginn 25. janúar. Ráðstefnan fer fram í Háskólanum í Reykjavík í stofu V101 og hefst kl. 17. Dagskrá ráðstefnunnar má finna í viðhengi. Ráðstefnustjóri verður Ingvar Sverrisson formaður ÍBR. Skráning fer fram á vefsíðu ÍSÍ og er aðgangur ókeypis.


Hér má sjá dagskrá ráðstefnunnar:
Dagskrá afreksþjálfun
 

Ráðstefnan er haldin í tengslum við Reykjavíkurleikana (WOW Reykjavik International Games 2018). Reykjavíkurleikarnir eru fjölgreina afreksíþróttamót sem haldið verður í 11. sinn árið 2018. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), í samstarfi við sérsambönd ÍSÍ, íþróttafélögin í Reykjavík og dyggum samstarfsaðilum, standa að leikunum. Keppni er frá 25. janúar til 4. febrúar og fer að mestu leyti fram í Laugardalnum og nágrenni hans. Glæsileg hátíðardagskrá verður á báðum keppnishelgum og margt spennandi að sjá.

Nánar á RIG.is