Róbert heimsmeistari í 200m fjórsundi!


Róbert Ísak Jónsson tryggði sér í nótt heimsmeistaratitilinn í 200m fjórsundi (S14, þroskahamlaðir) á HM sem nú stendur yfir í Mexíkó.


Róbert synti á 2:19.34 mín. og hafði þar betur í baráttunni gegn Suður-Kóreumanninum Cho Wonsang.


Wonsang var með forystuna eftir flug, bak og bringu en Róbert náði honum á síðasta snúning og stakk svo af á skriðsundskaflanum og vann glæsilegan sigur.


Þá vann Sonja Sigurðardóttir til bronsverðlauna í 100m skriðsundi í flokki S4 (hreyfihamlaðir) en í hennar keppni voru bein úrslit og þrír keppendur. Sonja kom í bakkann á 2:34.77 mín.


Íslenski hópurinn hefur því unnið til fernra verðlauna til þessa á mótinu, eitt gull, eitt silfur og tvenn bronsverðlaun.

Mynd/ Róbert Ísak Jónsson er búinn að landa silfur- og gullverðlaunum á HM í Mexíkó!