Íslandsmót ÍF í 25m laug um helgina


Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 25m laug fer fram í Laugardalslaug þessa helgi, 18.-19. nóvember. Óhætt er að segja að Laugardalurinn muni iða af lífi því mótshlutar ÍF fara fram inn á milli mótshluta Sundsambands Íslands sem einnig heldur sitt Íslandsmót í 25m laug.


Mótshluti ÍF hefst laugardag 18. nóvember þar sem upphitun er 11.30-12.00 og keppni frá 12:00 til um það bil 14.30. Hér að neðan má nálgast greinaröð mótsins sem og ráslista en þeir kunna að breytast á keppnisdegi.

Hér verður hægt að fylgjast með úrslitum mótsins í beinni uppfærslu


Greinaröð mótsins
Ráslistar