Íþróttasamband fatlaðra hlýtur styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ


Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) hefur hlotið viðbótarstyrkveitingu úr Afrekssjóði ÍSÍ vegna afreksverkefna ársins 2017.  Um er að ræða styrk að upphæð 5 m.kr. sem bætist við fyrri úthlutun til sambandsins, en sambandið hlaut styrk að upphæð 7.750.000 kr. í fyrri úthlutun ársins úr Afrekssjóði ÍSÍ.


Afreksstarf Íþróttasambands fatlaðra hefur verið í blóma á undanförnum árum.  Eftir Paralympics sem haldnir voru í Ríó 2016 var afreksstefna sambandsins tekin til endurskoðunar og í framhaldi þess var ný afreksáætlun samin og kynnt. Í afreksáætluninni fólst m.a. að ráðnir voru tveir yfirmenn landsliðsmála hjá sambandinu, þeir Ingi Þór Einarsson og Kári Jónsson sem vinna „þvert“ á þær íþróttagreinar sem stundaðar eru innan ÍF.  ÍF hefur sent keppendur á fjölmörg alþjóðleg mót það sem af er ári, hvort heldur í frjálsíþróttum, sundi eða bogfimi.  Hæst ber að nefna árangur Helga Sveinssonar sem vann silfur á HM í sameinuðum flokkum F42, 43 og 44. Helgi setti heimsmeistaramótsmet fyrir flokk F42 með kasti upp á 56,74 metra en það met mun standa a.m.k. næstu tvö árin eða þangað til HM fer fram á nýjan leik árið 2019.  Aðgerðaráætun í afreksmálum liggur fyrir hjá ÍF sem gildir fram til Tokyo 2020 og lokaundirbúningur vegna PyeongChang 2018 er framundan.  Styrkur Afrekssjóðs ÍSÍ hefur mikla þýðingu gagnvart því afreksstarfi sem á sér stað í íþróttum fatlaðra á Íslandi og gagnvart undirbúningi og þátttöku í þeim alþjóðlegu verkefnum sem eru framundan.


Í tengslum við Paralympic daginn sem fram fór í Laugardalshöll laugardaginn 21. október sl. var undirritaður samningur milli Afrekssjóðs ÍSÍ og ÍF.  Á myndinni má sjá þau Andra Stefánsson, sviðsstjóra Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ, Ásu Ólafsdóttur, varaformann Afrekssjóðs ÍSÍ, Jóhann Arnarson, varaformann ÍF og Halldór Sævar Guðbergsson, gjaldkera ÍF.

Mynd/ Bára Dröfn Kristinsdóttir