Fannar Logi landaði bronsi á heimsmeistaramóti ungmenna!


Heimsmeistaramót fatlaðra ungmenna í frjálsum íþróttum stendur nú yfir í Nottwil í Sviss þar sem Ísland teflir fram fjórum keppendum. Í gær var fyrsti keppnisdagur þar sem Eikar-maðurinn Fannar Logi Jóhannesson landaði bronsi í langstökki þroskahamlaðra keppenda (F20). Fannar bætti sinn besta persónulega árangur þegar hann stökk 4,91 meter.


Þá bættu Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir og Erlingur Ísar Viðarsson sinn besta árangur í 200m hlaupi en bæði keppa þau í flokkum hreyfihamlaðra (T37).


Árangur íslensku keppendanna á fyrsta keppnisdegi í Sviss:


Fannar Logi Jóhannesson - langstökk F20 - 4,91m

Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir - 200m hlaup T37 - 4. sæti - tími: 33,17 sek.

Helena Ósk Hilmarsdóttir - 200m hlaup T38 - 13. sæti - tími: 38,20 sek.

Erlingur Ísar Viðarsson - 200m hlaup T37 - 12. sæti - tími 31,46 sek.


Hægt er að sjá mótið í beinni útsendingu á netinu hér.


Mynd/ Egill Þór - Fannar Logi lengst til vinstri með bronsverðlaunin sín.