Nes Íslandsmeistari í sveitakeppni í 1. deild


Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sveitakeppni í boccia fór fram í Laugardalshöll helgina 1.-2. apríl. Nes-1 varð Íslandsmeistari í 1. deild en sveitina skipuðu þeir Konráð Ragnarsson, Arnar Már Ingibergsson og Rangar Lárus Ólafsson. Nes lét ekki þar við liggja heldur tók félagið einnig silfurverðlaunin í 1. deild með sveit sem innihélt þau Vilhjálm Jónsson, Bryndísi Brynjólfsdóttur og John William Boyd og sveit Völsungur-A landaði bronsinu með Kristbjörn Óskarsson, Vilberg Linda Sigmundsson og Ásgrím Sigurðsson innanborðs.


Öll úrslit helgarinnar má sjá hér að neðan en móti gekk vel í styrkri umgjörð boccia-nefndar ÍF og þá vill sambandið koma á framfæri innilegu þakklæti til allra sjálfboðaliðanna sem störfuðu við mótið og þá fær Lionsklúbbur Hafnarfjarðar sérstakar þakkir fyrir sitt veglega framlag.

Úrslit í sveitakeppni Boccia 1. og 2. apríl 2017

1. deild

1. sæti:      Nes - 1: Konráð Ragnarsson, Arnar Már Ingibergsson og Ragnar Lárus Ólafsson
2. sæti:      Nes - 2:  Vilhjálmur Jónsson, Bryndís Brynjólfsdóttir og John William Boyd
3. sæti:      Völsungur - A: Kristbjörn Óskarsson, Vilberg Lindi Sigmundsson og Ásgrímur Sigurðsson

2. deild

1. sæti        Eik E: Bára Sigurðardóttir, María Dröfn Einarsdóttir og Elma Berglind Stefánsdóttir
2. sæti        Nes - 8:  Erla Sif Kristinsdóttir, Unnur Hafstein Ævarsdóttir og Thelma Rut Gunnlaugsdóttir
3. sæti        Snerpa - B:  Sigurjón Sigtryggsson, Heiðrún Jónasdóttir og Sveinn Kjartansson

3. deild

1. sæti        Ívar - B: Guðmundur Þórarinsson, Kristín Þórarinsdóttir og Matthildur Benediktsdóttir
2. sæti        Suðri - E:  Arnar Árnason, Birgir Örn Viðarson og Guðmundur Ásbjörnsson
3. sæti        Ægir - 2: Ylfa Óladóttir, Katrín Helena Magnúsdóttir og Birgir Reimar Rafnsson

Rennuflokkur

Sæti        Ösp – A: Kristján Vignir Hjálmarsson og Þórey Rut Jóhannesdóttir
Sæti        Nes / Ægir: Ástvaldur Ragnar Bjarnason og  Bernharður Jökull Hlöðversson
Sæti        Ösp - B: Fanney Ósk Eyjólfsdóttir

BC 1 – 4

1. sæti        ÍFR – A: Ingi Björn Þorsteinsson og Hilmar Kolbeins
2. sæti        Ösp – A: Kristín Jónsdóttir og Hulda Klara Ingólfsdóttir
3. sæti        ÍFR / Þjótur: Aneta Beta Kaczmarek og Sigurður Smári Kristinsson

Myndir/ AKV og JBÓ: Efri mynd er af verðlaunahöfum í 1. deild en á neðri myndinni er ungur og öflugur keppandi frá Bocciadeild Völsungs í miðjum leik.