Íslandsmót ÍF í sundi 8. og 9. apríl


Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 50m. laug fer fram í Laugardalslaug dagana 8.-9. apríl næstkomandi. Synt verður á milli mótshluta hjá Sundsambandi Íslands á ÍM50.


Dagskrá Íslandsmóts ÍF 8.-9. Apríl 2017

Laugardagur 8. apríl: Upphitun 11:45 – Keppni 12:30-15:30?
Sunnudagur 9. apríl: Upphitun 11:45 – Keppni 12:30-15:30

Skráningargögn hafa þegar verið send út til aðildarfélaga ÍF. Nánari upplýsingar um mótið má nálgast á skrifstofu ÍF eða hjá Þór Jónssyni á thor@lsretail.com