Íþróttaskóli ÍFR hefst 11. febrúar


Íþróttaskóli ÍFR hefst laugardaginn 11. febr. 2017  í íþróttahúsi ÍFR Hátúni 14. Kennt verður á laugardögum frá kl.11.00 til 11.50. Lögð er áhersla á þátttöku barna með hreyfihömlun á aldrinum 4 -10 ára.


Námskeiðstími:  11. febr. til 8 apríl.
Ekkert gjald er fyrir þátttöku í Íþróttaskóla ÍFR

Vinsamlega skráið þátttakendur með tölvupósti til ifr@ifr.is
Við skráningu þarf  eftirfarandi að koma fram.
Nafn barns.  Aldur. Fötlun. Nafn foreldra.

Stjórnendur íþróttaskóla ÍFR eru:
Einar Hróbjartur Jónsson íþróttakennari
Ágústa Ósk Einars Sandholt íþróttakennari