Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga 8. janúar


Nýárssundmót fatlaðra barna og unglinga fer fram í Laugardalslaug í Reykjavík sunnudaginn 8. janúar næstkomandi. Gjaldgengir eru sundmenn úr röðum fatlaðra sem verða 17 ára á árinu og yngri. Búist er við um 70 þátttakendum í mótið og venju samkvæmt munu skátar úr skátafélaginu Kópum standa heiðursvörð við mótið. Tónlistarflutningur verður í höndum skólahljómsveitar Kópavogs og þá verður hr. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands heiðursgestur Íþróttasambands fatlaðra við mótið. 


Upphitun mótsins hefst kl. 14:00 en keppni kl. 15:00.

Sjómannabikarinn:
Sjómannabikarinn er nú veittur í þrítugasta og fjórða skipti. Sjómannabikarinn var gefinn af Sigmari
Ólasyni, sjómanni á Reyðarfirði árið 1984 og er hann veittur fyrir besta sundafrek mótsins samkvæmt
stiga og forgjafaútreikningi. Árið 1993 vann Birkir Rúnar Gunnarsson bikarinn til eignar, árið 2001
vann Gunnar Örn Ólafsson bikarinn til eignar og Guðrún Sigurðardóttir vann bikarinn til eignar árið
2005. Kolbrún Alda Stefánsdóttir vann bikarinn til eignar 2013.


Handhafar Sjómannabikarsins frá upphafi:
1984 Sigrún Pétursdóttir, ÍFR 50 m baksund alls 482 stig
1985 Bára B. Erlingsdóttir, Ösp 50 m bringusund alls 493 stig
1986 Sigrún H. Hrafnsdóttir, Ösp 50 m baksund alls 418 stig
1987 Sigrún H. Hrafnsdóttir, Ösp 50 m skriðsund alls 517 stig
1988 Gunnar Þ. Gunnarsson, ÍFS 50 m baksund alls 590 stig
1989 Geir Sverrisson, UMFN 50 m bringusund alls 550 stig
1990 Ólafur Eiríksson, ÍFR 50 m bringusund alls 570 stig
1991 Birkir R. Gunnarsson, ÍFR 50 m bringusund alls 509 stig
1992 Birkir R. Gunnarsson, ÍFR 50 m bringusund alls 581 stig
1993 Birkir R. Gunnarsson, ÍFR 50 m bringusund alls 647 stig
1994 Birkir R. Gunnarsson, ÍFR 50 m bringusund alls 777 stig
1995 Hanna Kristín Jónsdóttir, ÍFH/Ægi 50 m baksund alls 756 stig
1996 Heiðdís Dögg Eiríksdóttir, ÍFH/Ægi 50 m skriðsund alls 637 stig
1997 Haraldur Þór Haraldsson, ÍFR 50 m bringusund alls 756 stig
1998 Anna Rún Kristjánsdóttir, Óðni 50 m bringusund alls 546 stig
1999 Gunnar Örn Ólafsson, Ösp 50 m baksund alls 618 stig
2000 Gunnar Örn Ólafsson, Ösp 50 m baksund alls 809 stig
2001 Gunnar Örn Ólafsson, Ösp 50 m baksund alls 771 stig
2002 Jóna Dagbjört Pétursdóttir, ÍFR 50 m flugsund alls 514 stig
2003 Guðrún Sigurðardóttir, SH 50 m baksund alls 629 stig
2004 Guðrún Sigurðardóttir SH/ÍFR 50 m flugsund alls 547 stig
2005 Guðrún Sigurðardóttir SH/ÍFR 50 m skriðsund alls 528 stig
2006 Hulda H. Agnarsdóttir, Firði 50 m skriðsund alls 575 stig
2007 Karen B. Gísladóttir, S14 Firði 50 m skriðsund alls 727 stig
2008 Karen B. Gísladóttir, S14, Firði 50 m skriðsund alls 732 stig
2009 Jón Margeir Sverrisson, S14, Ösp 50 m skriðsund alls 676 stig
2010 Vilhelm Hafþórsson, S14, Óðni 50 m skriðsund alls 657 stig
2011 Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Firði 50 m skriðsund alls 594 stig
2012 Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Firði 50 m bringusund alls 764 stig
2013 Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Firði 50 m skriðsund alls 679 stig
2014 Kolbrún Alda Stefánsdóttir, Firði 50 m bringusund alls 701 stig
2015 Davíð Þór Torfason, Fjölni 50 m skriðsund alls 542 stig
2016 Róbert Ísak Jónsson 50 m flugsund alls 590 stig

Mynd/ Jón Björn - Róbert Ísak Jónsson sigurvegari Nýárssundmótsins 2016 ásamt fjölskyldu sinni í Laugardalslaug.