
Ólympíu- og afrekssvið ÍF hefur samþykkt tillögu íþróttanefnda og landsliðsþjálfa ÍF um að til þess að öðlast þátttökurétt á Evrópumeistaramót fatlaðra í sundi og frjálsum íþróttum þurfi einstaklingur að vera í B-hóp samkvæmt Afreksstefnu ÍF 2012 - 2020. Viðmið þessi gilda bæði vegna Evrópumeistaramóts fatlaðra í sundi sem fram fer í Eindhoven í Hollandi 4. - 10. ágúst n.k. og Evrópumeistaramóts í frjálsum íþróttum sem fram fer í Swansea í Wales 15. - 24. ágúst n.k.
Afreksstefnu ÍF má finna á heimasíðu sambandsins með því að smella hér.
Mynd/ EM fatlaðra í frjálsum 2014 fara fram í Swansea.