Kolbrún tók síðasta met Sigrúnar



Sundkonan Kolbrún Alda Stefánsdóttir Fjörður/SH, sló á dögunum síðasta Íslandsmetið í 50m laug sem var í eigu Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur. Sigrún Huld var einhver besti sundmaður þroskahamlaðra kvenna um árabil en nú er síðasta metið fallið. Kolbrún Alda bætti met Sigrúnar um síðustu helgi á Gullmóti KR þegar hún synti á 3:02,27 mín. í 200m bringusundi.

Kolbrún á nú 13 ríkjandi Íslandsmet í 50m laug í flokki S14 (flokki þroskahamlaðra) en þau eru í 50m, 100m, 200m, 400m og 800m skriðsundi. 50m, 100m og 200m bringusundi, 50m, 100m og 200m baksundi, 200m og 400m fjórsundi. Sannarlega glæsilegur árangur!

Íslandsmet fatlaðra í sundi í 50m laug