
Gunnar Einar Steingrímsson gekk úr stjórn á þinginu vegna starfa sinna erlendis og var honum þakkað fyrir sín störf í þágu sambandsins. Inn í hans stað í varastjórn kom Matthildur Kristjánsdóttir.
Ný stjórn ÍF kjörin á Sambandsþingi 2013:
Formaður: Sveinn Áki Lúðvíksson
Varaformaður: Þórður Árni Hjaltested
Meðstjórnendur: Jóhann Arnarson, Ólafur Þór Jónsson og Margrét Kristjánsdóttir.
Varastjórn: Matthildur Kristjánsdóttir, Guðlaugur Ágústsson og Jón Heiðar Jónsson.
Mynd/ Ný Stjórn Íþróttasambands fatlaðra sem starfa mun 2013-2015.