
Þau keppa öll í einstaklingskeppni og í fyrsta skipti mun Ísland taka þátt í parakeppni, þar sem þær Þórdís og Katrín Guðrún munu sýna listir sínar. Keppnisatriðin sem hafa verið æfð af miklu kappi í haust undir stjórn Helgu Olsen og Guðbjartar Erlendsdóttur, verða frumsýnd á sýningunni.
Ungt og efnilegt skautafólk frá Skautadeild Aspar sýna einnig dansatriði sem þau hafa æft í haust en hjá deildinni æfa nú yfir 20 börn og unglingar
Sýningaratriði hefjast kl. 18.15.
Við hvetjum fólk til þess að koma og fylgjast með glæsilegri sýningu og styðja þannig við þetta einstaka íþróttafólk.