Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti var haldinn
hátíðlegur í Whistler í Vancouver þann 8. mars síðastliðinn. Forseti
Alþjóðaólympíuhreyfingar fatlaðra (IPC), Sir. Phil Craven hélt ræðu þar sem hann
hvatti til aukinnar þátttöku kvenna í íþróttastarfi fatlaðra. Craven kynnti
jafnframt nokkrar konur sem eiga það sameiginlegt að hafa starfað eða eru að
hefja störf fyrir IPC.
Forseti Íþróttasambands fatlaðra í Kanada var með ávarp en hún hefur verið sérlega ötul í baráttu fyrir því að kynning sé samræmd á Ólympíuleikum og Ólympíumóti fatlaðra í Kanada. Einkennismerki beggja leikanna eru hlið við hlið á skiltum í Whistler og Kanada og markvisst hefur verið unnið að því að tengja þessa tvo viðburði saman.
Konur eru mun færri þátttakendur en karlar á vetrarólympíuleikum og því var fagnað að ný þátttökulönd mættu til leiks með keppendur í flokki kvenna eins og gildir um Íslands. Allar konur fengu blóm frá Sir. Phil Craven í tilefni alþjóðadags kvenna og mikil stemmning ríkti á staðnum.
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir skrifar frá Vancouver
Ljósmynd/ Craven í
kvennafans.