Sundkonan Ragney Líf Stefánsdóttir var útnefnd íþróttamaður
Ísafjarðarbæjar árið 2008. Ragney Líf er 16 ára og hefur æft sund hjá
Íþróttafélaginu Ívari í níu ár. Á síðasta ári keppti hún á þremur stórum mótum;
Malmö-open í Svíþjóð, Íslandsmóti ÍF í 50 metra laug og Íslandsmóti ÍF í 25
metra laug. Á öllum mótunum stóð hún sig með prýði og vann m.a. til fjögurra
verðlauna á Malmö-open, þar á meðal tvö gullverðlaun. Fimm verðlaun á
Íslandsmótinu í 50 metra laug ,þar af tvö gull og eitt brons, og þrjú
gullverðlaun á Íslandsmótinu í 25 metra laug. Samtals vann hún fimm
Íslandsmeistaratitla á árinu 2008.
Þess má einnig geta að Ragney Líf keppti á Nýárssundmóti Í þann 3. janúar og var þriðja stigahæst á mótinu. Hún setti Íslandsmet í 50 m bringusundi, bætti sig í öllum greinum og komst inn í landliðsæfingarhóp Íþróttasambands fatlaðra. Ragney Líf stundar nám við Menntaskólann á Ísafirði og er á afreksbraut skólans.
Greinina í heild sinni má lesa á vefsíðu BB – www.bb.is
http://bb.is/?PageID=26&NewsID=127051
Mynd: Af www.bb.is – Ragney Líf ásamt
foreldrum sínum Valdísi og Stefáni.