Helgi og Sonja íþróttafólk ársins 2016


Frjálsíþróttamaðurinn Helgi Sveinsson, Ármann, og sundkonan Sonja Sigurðardóttir, ÍFR, voru í dag valin íþróttamaður og íþróttakona ársins úr röðum fatlaðra á árlegu hófi Íþróttasambands fatlaðra. Hófið fór fram á Radisson Blu Hóteli Sögu.


Íþróttakona ársins
Sonja Sigurðardóttir
Sund, ÍFR (S4)


Íþróttakona ársins 2016 er Sonja Sigurðardóttir sundkona frá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík, ÍFR. Þetta er í þriðja sinn sem Sonja hlýtur nafnbótina Íþróttakona ársins úr röðum fatlaðra en hún hlaut verðlaunin einnig árin 2008 og 2009.
Helsta afrek Sonju á árinu var Íslandsmet hennar í 50m baksundi á Paralympics í Ríó de Janeiro í Brasilíu. Sonja komst þá í úrslit í greininni og setti þar nýtt og glæsilegt Íslandsmet er hún kom í bakkann á tímanum 59,97 sek. Sonja hafnaði í 8. sæti í keppninni.
Sonja keppti á þremur alþjóðlegum stórmótum á árinu, bar þar hæst vitaskuld þátttaka hennar á Paralympics en hún keppti einnig á opna þýska meistaramótinu og Evrópumeistaramótinu í Portúgal.
Þjálfarar Sonju í gegnum tíðina hafa verið þeir Jón Heiðar Jónsson, Halldór Guðbergsson, Erlingur Þ. Jóhannsson og núverandi þjálfari hennar hjá ÍFR er Tomas Hajek.

Íþróttamaður ársins
Helgi Sveinsson
Frjálsar, Ármann (F42)


Íþróttamaður ársins 2016 er Helgi Sveinsson, spjótkastari frá Ármanni. Rétt eins og í tilfelli Sonju er þetta einnig í þriðja sinn sem Helgi hlýtur nafnbótina Íþróttamaður ársins úr röðum fatlaðra. Helgi varð fyrst íþróttamaður ársins 2013 og svo aftur 2015 og er þetta því annað árið í röð sem Helgi er útnefndur.
Helsta afrek Helga á árinu var Evrópumeistaratitill í spjótkasti í sameiginlegum flokki F42,43 og 44 sem og hörð barátta hans í úrslitum spjótkastkeppninnar á Paralympics þar sem hann hafnaði í 5. sæti á nýju Paralympic-meti er hann kastaði spjótinu 53,96 metra. Þjálfari Helga í dag er Kári Jónsson en þjálfarar frá upphafi eru áðurnefndur Kári, Guðmundur Hólmar Jónsson og Einar Vilhjálmsson.



Afreksskjöldur ÍF: Jón Margeir Sverrisson


Stjórn Íþróttasambands fatlaðra hefur ákveðið að veita Jóni Margeiri Sverrissyni afreksskjöld sambandsins fyrir sitt framlag til íþrótta fatlaðra. Jón er á meðal fremstu afreksmanna Íslendinga og hefur ákveðið að hætta afrekssundmennsku sinni. Í reglugerð um heiðursmerki ÍF segir:
„Afreksskjöldur ÍF er silfurmerki á silfurskildi, borið í borða með íslensku fánalitunum. Skal aðeins veita þeim, sem vinna frábær íþróttaafrek og hljóta verðlaun á alþjóðlegum stórmótum.“

Jón Margeir náði hámarki ferils síns þegar hann vann til gullverðlauna á Paralympics 2012 í London. Setti Jón þátt nýtt Paralympic-met og um leið heimsmet í 200m skriðsundi í flokki S14, þroskahamlaðir.
Ferill Jóns er einkar glæsilegur og hefur hann verið mörgum íþróttamanni úr röðum fatlaðra innblástur í sinni íþróttaiðkun sem og fyrirtaks fulltrúi íþrótta bæði hér innanlands sem og erlendis. Það er stjórn ÍF heiður að sæma Jón Margeir afreksskyldi sambandsins.



Reglugerð um Hvataverðlaun ÍF 2016


Hvataverðlaunin eru veitt einstaklingum, félagasamtökum, stofnun, fyrirtæki eða öðrum aðilum sem á framsækinn hátt hafa unnið í þágu íþróttastarfs fatlaðra á árinu.

Hvataverðlaunin 2016 hlýtur Helga Olsen

Umsögn;

Helga Olsen kom að starfi með Íþróttasambandi fatlaðra þegar hún tók að sér þjálfun keppenda í listhlaupi á skautum fyrir alþjóðaleika Special Olympics í Japan árið 2005. Þá starfaði hún sem skautaþjálfari hjá skautafélaginu Birninum.  Hún hefur leitt skautastarf fyrir fatlaða á Íslandi og starfar nú hjá skautadeild Aspar.  Þar æfa einstaklinga með mismunandi fötlun og í gegnum skautastarfið hafa fjölmargir Íslendingar, fengið tækifæri til þátttöku á mótum innanland og erlendis.
Helga hefur verið sérlega ötul við að ná til sérhæfðra skautaþjálfara og dómara og fá þá í lið með sér í skautastarfi fyrir fatlaða.  Hún hefur með góðu fólki, skipulagt alþjóðleg skautamót á Íslandi fyrir alla fötlunarflokka og verið mjög virk í að efla greinina fyrir einstaklinga með fötlun / sérþarfir.  Hún er í hlutverki íþróttagreinastjóra Special Olympics á Íslandi í skautaíþróttum og sinnir því hlutverki af miklum krafti.

Helga hefur sem kennari staðið að skólaverkefni í samstarfi við Special Olympics á Íslandi en verkefnið tengdi saman nemendur og keppendur sem tóku þátt í alþjóðavetrarleikum Special Olympics. Hólabrekkuskóli hlaut verðlaun fyrir verkefnið 2013.  Helga hefur aftur sett af stað skólaverkefni sem tengist alþjóðavetrarleikum Special Olympics í Austurríki árið 2017 þar sem verða 4 íslenskir keppendur.   Þrátt fyrir að skautaverkefnið sé upphaflega innleitt gegnum Special Olympics á Íslandi hefur ávallt ríkt sú  gegnumgangandi stefna að verkefni eiga að vera í þágu allra fötlunarhópa og Helga hefur fylgt því mjög vel eftir í sínu starfi

Íþróttasamband fatlaðra  þakkar Helgu fyrir sín mikilvægu störf 
og hún er sannarlega vel að þessu komin.