Bocciadeild Völsungs tekur að sér Íslandsmótið 2017


Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í einliðaleik í boccia 2017 mun fara fram á Húsavík í samstarfi og samráði við Bocciadeild Völsungs.


Mestar líkur eru á því að mótið fari fram í októbermánuði en endanleg staðfesting á dagsetningu mótsins verður send aðildarfélögum eins fljótt og auðið er.