SIGN með íslenska hópnum í Ríó


Á Paralympics/Ólympíumóti fatlaðra er sú hefð ríkjandi að borgarstjóra Ólympíuþorpsins er færð gjöf frá hverju því landi sem í þorpinu býr.


Gjafir þessar eru veittar með viðhöfn þegar landið er boðið velkomið í þorpið en íslenski hópurinn verður boðinn velkominn með athöfn sem haldin verður þann 5. september n.k. Við þessa hátíðlegu athöfn, þar sem m.a. Paralympics-/Ólympíumótsóðurinn verður leikinn og íslenski fáninn dreginn að hún, mun Jón Björn Ólafsson, aðalfararstjóri íslenska hópsins, veita borarstjóra þorpsins forláta gjöf hannaða af Inga Bjarnasyni, eiganda gullsmíðafyrirtækisins SIGN


Gjöfin, sem afhent verður, er unninn úr hrauni og vatnsskorinn í Íslands mynd en í hönnun skart- og listmuna SIGN birtist gjarnan dulúð íslenskrar náttúru og frumkraftar hennar eldurinn og ísinn.


Á myndinni þakkar Ólafur Magnússon f.h. ÍF Inga Bjarnasyni einganda SIGN fyrir velvilja fyrirtækisins og veittan stuðning við þátttöku sambandsins í Ríó