Vel heppnað Íslandsmót í frjálsum á Akureyri




Íslandsmóti ÍF í frjálsum utanhúss fór fram á Akureyri 23. og 24.júlí samhliða Meistaramóti Íslands hjá FRÍ.

Alls lágu 7 Íslandsmet í valnum eftir harða atlögu okkar besta afreksfólks úr röðum fatlaðra þrátt fyrir bleytu og 10°C.

Patrekur Andrés Axelsson úr Ármanni bætti 100m T11 um hálfa sekúndu og rann skeiðið á 13,07 sek ásamt Guðmundi Karli Úlfarssyni aðstoðarmanni sínum. Hann gerði sér svo lítið fyrir og stökk 4,10m í langstökki. Stefanía Daney Guðmundsdóttir úr Eik er líka iðin við metin, hún bætti metið í 200m um hálfa sekúndu og hljóp á 30,40 sek. Svo stökk hún eins og hind yfir hverja hæðina af annarri í hástökki. Þar endaði hún með að bæta sig um 21 cm og fara yfir 1,46m. Michel Thor Meselter kom sérstaklega heim frá Lúxemburg til að keppa á mótinu og uppskar 4 gull. Hann setti met í 800m 3:23,53 mínn og í 1500m 7:13,49 mín. Þá fer ekki fram mót í frjálsum að Hulda Sigurjónsdóttir komi ekki með eins og eitt met. Nú var það í sleggju 18,80m.

Eik sem nú var á heimavelli á Hamarsvellinum fór mikinn í verðlaunasöfnuninni með Kristófer Fannar Sigmarsson og Stefaníu Daney Guðmundsdóttur í broddi fylkingar. En auk þeirra kepptu Héðinn Jónsson og María Dröfn Einarsdóttir í flokki 20 og Helena Ósk Hilmarsdóttir í flokki 37. Þau tóku alls 28 verðlaun. Systurnar Hulda og Sigríður Sigurjónsdætur sáu um verðlaunin hjá Suðra sem urðu 4 gull, 3 silfur og 1 brons, allt í kastgreinunum. ÍFR tefldi fram Michel Thor og Matthildi Ylfu Þorsteinsdóttur. Michell tók sín 4 gull en Matthildur hitti illa á plankann í langstökkinu og svo fór að hún gerði öll stökkin ógild nema eitt sem hún hljóp út í gryfju. Niðurstaðan því 4 gull og eitt silfur. Ármenningarnir Helgi Sveinsson og Patrekur Andrés Axelsson skiluðu sínum fjórum gullpeningum. Helgi eftir einvígi við norðmanninn Runar Steinsted sem kom sérstaklega á þetta alþjóðlega mót. Helgi kastaði 51,11m og Runar 45,60m Báðir áttu í erfiðleikum með að fóta sig á hálli brautinni. Öspin sendi einn keppanda katrínu Önnu Heiðarsdóttur sem varð þriðja í 100m og langstökki.

Mótið var vel framkvæmt af UFA og UMSE í sameiningu undir vökulu auga yfirdómara FRÍ Sigurðar Haraldssonar og fulltrúa ÍF Theodórs Karlssonar og landsliðsþjálfarans Kára Jónssonar.