Hákon þrefaldur Íslandsmeistari í borðtennis


Myndband: Æsispennandi lokasprettur um gullið
 


Íslandsmóti ÍF í borðtennis er lokið en keppni fór fram í Íþróttahúsi ÍFR að Hátúni í Reykjavík. Hákon Atli Bjarkason frá ÍFR kom sá og sigraði á mótinu en hann varð þrefaldur Íslandsmeistari!


Hákon sigraði Hilmar Björn Zoega í æsispennandi oddaleik í opnum flokki og var lokastaðan 13-11 Hákoni í vil í oddaleiknum. Þá varð Hákon einnig Íslandsmeistari í karlaflokki sem og í tvíliðaleik þar sem hann og Hilmar Björn mynduðu sterkt teymi og lönduðu þeir gullinu örugglega.


Úrslit Íslandsmóts ÍF í borðtennis 2018


Opinn flokkur


1. sæti: Hákon Atli Bjarkason
2. Hilmar Björn Zoega
3. -4. sæti: Stefán Thorarensen/Áslaug Hrönn Reynisdóttir


Karlaflokkur


1. sæti: Hákon Atli Bjarkason
2. sæti: Hilmar Björn Zoega
3. sæti: Guðbjartur Arnar Guðbjartsson


Kvennaflokkur


1. sæti: Áslaug Hrönn Reynisdóttir
2. sæti: Guðrún Ólafsdóttir
3. -4. sæti: Soffía Rún Jónsdóttir/ Inga Hanna Jóhannesdóttir


Þroskahamlaðir, karlar


1. sæti: Stefán Thorarensen
2. sæti: Sigurður Andri Sigurðsson
3. Elvar Egilsson


Tvíliðaleikur


1. sæti Hákon Atll Bjarkason/ Hilmar Björn Zoega
2. sæti Áslaug Hrönn Reynisdóttir/ Björn Harðarson
3. sæti Gunnlagur B. Sigurgeirsson/ Guðbjartur Arnar Guðbjartsson


Mynd/ JBÓ - Hákon Atli varð í dag þrefaldur Íslandsmeistari í borðtennis fatlaðar á Íslandsmóti ÍF sem fram fór í húsi ÍFR að Hátúni í Reykjavík.