| Íþróttasamband Fatlaðra | Föstudagur 25. febrúar 2011 15:10 |
| Skíðanámskeið í Hlíðarfjalli: Gleði og ánægja á Akureyri |
Þátttakendur voru einhverf börn, börn með sjónskerðingu og hreyfihömluð börn. Markmið námskeiðsins var að kynna skíðaíþróttina fyrir fötluðum börnum og aðstandendum þeirra en þetta námskeið var fyrir þá sem geta notað hefðbundinn skíðaútbúnað. Mjög góður árangur náðist hjá þátttakendum og mikil gleði og ánægja ríkti meðal þeirra og ekki síst aðstandenda. Í hópi þátttakenda var lítill drengur sem í fyrsta skipti á ævinni gat staðið einn og óstuddur en hann notar göngugrind. Hann hafði sérstaka skíðagrind en í lok námskeiðs skíðaði hann með aðstoð þjálfara án þess að nota skíðagrindina. Þessi upplifun hafði mikil áhrif á hann og aðra sem fylgdust með.
Þróun er að eiga sér stað á þessu sviði þó hægt gangi en aðalatriði er að fólk nýti þau tækfæri sem til staðar eru og prófi sig áfram. Í Hlíðarfjalli er til staðar sérbúnaður og kostur er á því að fá sérþjónustu ákveðna daga í viku. Helgina 4. - 6. mars verður námskeið fyrir þá sem þurfa að nota Bi ski eða Monoski og það námskeið er fullbókað. Þar verða íslenskir leiðbeinendur og aðstoðarfólk. |