Þinggerð 11.
Sambandsþings Íþróttasambands fatlaðra
haldið á Hótel
Stykkishólmi
28.-30. mars 2003.
Berglind
Gunnarsdóttir, Auður Kjartansdóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir léku fyrir
gesti.
1. Þingsetning
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður ÍF;
“Virðulegu gestir, þingfulltrúar og
félagar.
Þann 6. nóvember s.l. lést Jón Sigurðsson fyrrum formaður ÍFR. Jón tengdist íþróttastarfi fatlaðra frá
stofnun ÍFR í gegnum Kiwanisklúbbinn Esju. Hann sat í byggingarnefnd ÍFR árin
1988 til 1991 var kosinn í stjórn ÍFR árið 1989 og var formaður ÍFR árin 1990
til 1993. Sat í húsnefnd ÍFR árin 1993 til 1999.
Þann 30. janúar s.l. lést einn af frumkvöðlum og
aðalhvatamönnum íþrótta fatlaðra á Íslandi, Vigfús Gunnarsson. Vigfús var stofnfélagi ÍFR og fyrsti
gjaldkeri ÍFR. Var skoðunarmaður reikninga ÍFR allt til dauðadags.
Ég vil biðja þinggesti að rísa úr sætum og heiðra minningu
þessara tveggja heiðursmanna. Takk
fyrir.
Við lifum á tímum mikilla umbreytinga. það er eins og nú sé
komin stundin þegar allt á að gerast.
Við finnum þetta í okkar litla þjóðfélagi, við finnum þetta í löndunum í
kringum okkur.
Því miður hafa sumir séð sig knúna til að há styrjöld gegn
sjálfstæðri þjóð til, að þeirra áliti, að tryggja lýðræði sem hver þjóð á rétt
á. Hefur það stríð ásamt undirbúningi
þess haldið heiminum í heljargreipum.
Allar styrjaldir hafa víðtæk áhrif, áhrif sem skipta jafnt smáar sem
stórar þjóðir miklu máli, bæði siðferðislega sem fjárhagslega. Styrjaldir eru ekki bara gegn þeim þjóðum
sem þær eru háðar, heldur hefur hún áhrif
á allt mannkynið, samskipti milli þjóða breytast, stríð veldur tortryggni,
deilum og vinslitum svo fátt sé nefnt.
En það versta er að út úr þeim hörmungum sem styrjaldir valda þá verða
margir fyrir ástvinamissi og sumir verða fatlaðir og breytir hvorutveggja lífi
þeirra sem þeir eiga eftir ólifað.
Aðdragandinn að þessu stríði hefur legið lengi í loftinu og hefur meðal
annars haft áhrif á efnahag flestra þjóða.
Árásin á New York árið 2001 er samflétta þessara deilna.
Margt af því sem er að gerast hefur áhrif á starf fatlaðra,
getu þeirra til að stunda íþróttir hvað varðar aðstöðu og efni.
En það eru bæði framfarir sem og afturför sem hefur áhrif á
okkar starf.
Við sjáum að fatlaðir einstaklingar, jafnt afreksfólk sem
nýbyrjendur hefja æfingar og keppni með almennum íþróttafélögum og möguleikar
þeirra aukast á þann hátt.
Við sjáum byggð ný íþróttamannvirki sem gera fólki kleift
að stunda íþróttir allan ársins hring, við fáum góða menntaða þjálfara og aukin
tækifæri gefast til þátttöku. Allt er
þetta til framdráttar okkar íþróttafólki.
Við sjáum líka þjóðir sem leggja niður samtök eins og okkar
og vilja samruna fatlaðra við hin almennu félög þar sem hinn fatlaði
einstaklingur hefur orðið undir og missir af möguleikum sínum til að stunda
íþróttir.
Á Íslandi er vandinn öðruvísi, því þar sem verið er að
leggja niður stofnanir þar sem fatlaðir búa, minnkar möguleikinn sem felst í
margmenninu sem skapaðist á stofnunum og stærri sambýlum og var hvatning til að
sækja æfingar. Því er svo komið að sum
félög úr okkar röðum hafa lagst af og er það miður.
Afleiðing svika Spánverja á Olympíuleikunum í Syndey 2000
er enn að hafa áhrif á okkar starf. Nú
hefur stjórn IPC gefið út þá yfirlýsingu að þroskaheftir fái ekki að taka þátt
í næstu Olympíuleikum, og fyrr í vetur afturkölluðu þeir heimild til þátttöku
þroskaheftra á heimsmeistaramótinu í sundi í Argentínu. Þetta er mjög slæmt mál sem setur í gang
óeiningu meðal fatlaðra, óeiningu sem ekki er séð fyrir hvernig endar.
Síðasta þing sem við héldum var í nóvember 2000 og er því
lengri tími liðinn en venjulega milli þinga, en við höfum í samráði við
aðgerðir Íþrótta- og ólympíusambands Íslands fært þingtímann til vors þannig að
bókhald og uppgjör sé í betra samhengi við þingið og á þann hátt skilmerkara.
Það hefur verið hefð að halda þingin til skiptis í
Reykjavík, þaðan sem mestur fjöldi þingfulltrúa kemur og út á landsbyggðinni og
höfum við reynt að velja þingstaði í mismunandi landshlutum. Þetta hefur verið
gert til aukinnar fjölbreytni á þingstöðum sem og til kynningar á starfi okkar
í viðkomandi byggð, en fjöldi þingfulltrúa hefur vissulega sett svip sinn á
bæjarlíf viðkomandi staða meðan á stendur.
Hinsvegar er fjöldi þingfulltrúa nú með minnsta móti og spurninginn er hvers
vegna? Hafa kjörnir þingfulltrúar ekki
tíma eða er starfsemi félaganna ekki lengur það víðtæk að hægt sé að senda
fulla tölu fulltrúa? Er þessi tími
ársins ekki eins heppilegur og haustin? Eða er það bara ekki framkvæmanlegt að
halda þingin svona úti á landsbyggðinni og nauðsynlegt að breyta
fyrirkomulaginu? Getur verið að
nýafstaðin Íslandsmót eigi hér hlut að máli? Getur verið að uppskipting
Íslandsmóta í mörg mót þannig að sama fólkið þurfi að mæta á mótstað helgi
eftir helgi sé orsaka valdur?
Þetta eru allt spurningar sem við verðum að spyrja okkur og
fá svör við, svo við getum reynt að spyrna við fótum og upphafið þingið okkar
til fyrri virðingar. Það er jú þetta
þing sem er æðsta vald okkar starfs og við tökum þar ákvarðanir sem ráða för í
framtíðinni. Þetta er ykkar tækifæri
til að ráða og hafa áhrif. Það er því
nauðsynlegt að sem flestir mæti og móti starfið.
Eins og þið sjáið í skýrslu stjórnar sem þið hafið fengið í
hendur, þá er starfsemi Íþróttasambands fatlaðra fjölbreytt og mikil.
Það er hinsvegar alltaf spurning hvað sé nóg og hvort ekki
mætti gera betur og/eða meira. ÍF hefur
leitast við að viðhalda þeirri hefð að standa að baki uppbyggingu hefðbundinna
íþróttagreina sem og beitt sér fyrir kynningu á nýjum greinum. Við í stjórninni höfum einnig leitast við að
halda námskeið og kynningar eins og venja er og þið sjáið við lestur
skýrslunnar. Árin 1998 og 1999 stóð
þannig á verkefnum hjá ÍF að ekki náðust endar saman fjárhagslega og var
höfuðstóll þessara 2ja ára neikvæður.
Þarna var samspil kostnaðarsamra verkefna og minni tekjur. Sem betur fer átti ÍF nokkra peninga í sjóði
og gat mætt þessum aðstæðum. Árið 2000
sem var Olympíuár voru leikarnir haldnir í Syndey, og var gert sérstakt átak við
öflun peninga. Þá kom inn eins og svo
oft áður aukinn styrkur frá Alþingi sem hefur ávallt sýnt okkur velvild á
Olympíuári sem og betri söfnun víðsvegar.
Síðan hefur það gerst að okkur hefur tekist að fjölga samstarfssamningum
við fyrirtæki og munar þar mest um Rúmfatalagerinn eða 12 milljónir til 4ra ára þ.e. 3 milljónir á ári.
Þetta, ásamt auknu aðhaldi en án niðurskurðar, hefur orðið
til þess að ÍF hefur tekist að snúa dæminu við og á nú eins og kemur fram í
reikningum tæpar 10 milljónir í inneign.
Þessir fjármunir eru
því kærkomnir til að að mæta þeim verkefnum sem núverandi fjárhagsáætlun
stendur fyrir.
Það spyr sig samt trúlega einhver hvort það sé rétt að ÍF
skuli eiga svo mikla peninga í sjóði.
Hvort ekki sé rétt að ÍF auki heldur umsvif sín, og auðvitað eiga slíkar
spurningar rétt á sér. Þess vegna mun
stjórnin leggja fram tillögu til fjárlaganefndar um aukningu á verkefnum. Hinsvegar eru þetta umhræringatímar á
atvinnumörkuðum og vitum við ekki hvernig fjáröflun mun ganga á næstu
árum. Á næsta ári sem er Olympíuár
renna flestir samningar okkar út og á þessari stundu er ekki vitað um möguleika
á endurnýjun þeirra eða öflun nýrra í þeirra stað. Það er því ekki of varlega farið í þessum efnum.
Eins og áður, tel ég ekki þörf á að ég lesi upp skýrsluna í
heild sinni heldur mun stikla á stóru um starfsemina þannig að hægt sé að gera
sér skýrari mynd af hve starfið er mikið og margvíslegt sem unnið er á
skrifstofu Íþróttasambands fatlaðra og í félögunum, jafnt innanlands sem
erlendis.
Stjórn Íþróttasambands fatlaðra er þannig skipuð:
Þórður Árni
Hjaltested, ritari
Varastjórn: Erlingur
Þ. Jóhannsson,
Margrét Hallgrímsdóttir
Svava
Árnadóttir.
Starfsmenn
sambandsins eru:
Ólafur S. Magnússon,
framkvæmdastjórn afreks- og fjármálasviðs
Anna Karólína
Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjórn íþrótta- og útbreiðslusviðs
og Anna Guðrún Sigurðardóttir, sviðsstjóri
þjónustusviðs.
Fastanefndir eru 14 og í þeim starfa 60 manns.
Stjórnin ásamt varastjórn hefur haldið þeirri viðteknu
venju að halda fundi á þriðjudögum, en með breyttu fyrirkomulagi hefur fundum
fækkað og eru ekki lengur annan hvern þriðjudag heldur voru þeir þegar því var
viðkomið, fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði nema yfir hásumarið. Fundum fækkaði
því nokkuð eða úr 36 niður í 30 á tímabilinu.
Starfsmenn hafa eftir getu setið þá flesta og sem áður fundi flesta
þriðjudagsmorgna með formanni, jafnt sumar sem vetur. Einnig hefur gjaldkeri haft fundi með fjármálastjóra marga
miðvikudagsmorgna.
Ég vil nota tækifærið hér og þakka stjórnarmönnum sem og
starfsmönnum fyrir þeirra framlag til að gera starf ÍF sem mest.
Margrét Hallgrímsdóttir sem setið hefur í varastjórn til
margra ára hefur ákveðið að gefa ekki lengur kost á sér til stjórnarsetu og vil
ég þakka henni sérstaklega fyrir hennar góðu störf. Hún hefur skilað góðu starfi og verður söknuður af henni. Hún hefur að vísu lofað að heimsækja
skrifstofuna oft og veita okkur áframhaldandi liðsinni.
Aðrir fundir innanlands svo og ráðstefnur voru
margvíslegar.
Heimsóknir til aðildarfélaga, formannafundir, norrænir
fundir, heimsóknir til Kiwanis- og Lionsfélaga, fundir og ráðstefnur á vegum
Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands o.fl.
Samtals voru skráðir 58 slíkir fundir.
Í þessari tölu eru einnig fundir fastanefnda, sem voru
fjölmargir.
Erlend samskipti voru einnig margvísleg enda Íþróttasamband
Fatlaðra aðili að mörgum erlendum samtökum, bæði alþjóðlegum samtökum eins og
IPC og Special Olympics og einnig samtökum fyrir mismunandi fötlunarhópa. Ýmist voru þetta stjórnarfundir og/eða
tækninefndafundir og í einstaka tilfellum námskeið og kynningar á
íþróttagreinum, alls 19 fundir.
Námskeið og útbreiðslustarf var einnig fjölbreytt. Haldin voru nokkur A-stigs námskeið,
æfingabúðir þar sem voru bæði innlendir og erlendir leiðbeinendur og hinar
sívinsælu sumarbúðir voru á sínum stað á Laugarvatni. Voru þessi námskeið 8 talsins.
Starfsmenn ásamt ýmsu aðstoðarfólki stóðu fyrir
margvíslegum kynningum á vegum Íþróttasambands fatlaðra. Voru þessar kynningar bæði fyrir skólafólk á
ýmsum stöðum á landinu og eins voru kynntar ýmsar íþróttagreinar, má þar nefna vetraríþróttir, hestamennsku,
golf og margt fleira.
Ritið okkar Hvati, kemur út tvisvar sinnum á ári þrátt
fyrir að útgáfa blaðsins hafi verið í járnum.
Ritstjóri Hvata er Ólafur Jensson fyrrverandi formaður sambandsins. Var
síðasta tölublað heldur rýrara en vanalegt er en það stafaði af því hversu fáar
auglýsingar fengust, en þær hafa verið forsenda þess að halda blaðinu úti. Nú er söfnum komin vel á stað með næsta
tölublað og lofar hún góðu og eru horfur á að auglýsingatekjur fari í fyrra
horf og er það vel.
Sala jólakorta ÍF er ein af aðalfjáröflunum
aðildarfélaganna og er þeim góður fjárhagsstyrkur.
Jólakort árið 2000 var hannað af Camillu Th. Hallgrímsson
varaformanni ÍF.
Jólakort árið 2001 var hannað af Kristínu R. Hákonardóttir,
sundkonu.
Jólakort ÍF árið 2002 var hannað af Camillu Th.
Hallgrímsson.
GSFÍ – hefur unnið að kynningu á golfíþróttinni fyrir
fatlaða. Vonast er til þess að aðildarfélög
ÍF sýni þessu máli áhuga og vinni að eflingu greinarinnar í heimabyggð í
samvinnu við golfklúbba á hverjum stað.
Vel hefur tekist til með golfkennslu fatlaðra og þátttaka góð. Í gær fenguð þið svo kynningu á golfinu hjá
Guðmundi Blöndal sem var svo vinsamlegur að heimsækja okkur.
Samstarfsverkefni ÍF og HMÍ – Hestamiðstöðvar Íslands
- sem hófst árið 2001, á sviði
reiðmennsku og reiðþjálfunar fyrir fatlaða, hefur vakið fleiri til umhugsunar
um þá möguleika sem íslenski hesturinn býður upp á varðandi þjálfun
fatlaðra. Íslenskur reiðkennari Sigrún
Sigurðardóttir, hefur í vetur, stundað
sérnám í reiðmennsku og reiðþjálfun fatlaðra í Englandi. Fyrirhugað er að halda ráðstefnu í vor, í
framhaldi af ráðstefnu sem haldin var 2001 um reiðmennsku og reiðþjálfun
fatlaðra. Verður Sigrún einn af leiðbeinendum og fyrirlesurum ráðstefnunnar.
Íþróttasamband fatlaðra stóð fyrir 22 mótum innanlands þar
sem hæst stóðu Íslandsmót og Norðurlandamót. Einnig sendi sambandið
þátttakendur á 17 erlend mót. Þar tókum
við þátt í heimsmeistaramótum í hefðbundnum greinum en þar til viðbótar tóku
þátt keppendur í borðtennis og boccia.
Til undirbúnings þessara móta voru svo ýmsar æfingabúðir.
Margt annað hefur verið framkvæmt á tímabilinu, bæði
reglubundin vinna og svo ýmislegt sem einkenndi þetta tímabil.
Margar viðurkenningar voru veittar á tímabilinu og þá
sérstaklega í kringum afmæli og merka viðburði. Vil ég óska öllum þeim sem viðurkenningar hlutu enn og aftur til
hamingu.
Ég hef aðeins stiklað á stóru hérna og er starfsemin
tíunduð miklu betur í skýrslunni, en ef þinggestir vilja leggja fram spurningar
eða fá nánari skýringar munum við svara þeim eftir fremstu getu.
Góðir gestir, ég óska ykkur farsæls og árangursríks þings
og lýsi 11. sambandsþing Íþróttasambands Fatlaðra sett.
2. Ávörp gesta
Dagný
Þórisdóttir, fulltrúi bæjarstjórnar Stykkishólms.
Hafsteinn
Pálsson, fulltrúi Íþrótta- og ólympíusambands Íslands.
3. Kosning þingforseta og þingritara
Tillaga var um
Hafstein Pálsson og var hann einróma kjörinn þingforseti.
Tillaga var um
Önnu Guðrúnu Sigurðardóttur og Kristínu
Guðmundsdóttur og voru þær einróma kjörnar þingritarar.
4. Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar
Valgerður
Hróðmarsdóttir, Firði
Svanur Ingvarsson, Suðra
Þórður Jónsson, Kveldúlfi
Breytingatillaga kom fram um að
Karl Þorsteinsson, Ösp kæmi í nefndina í staðinn fyrir Svan Ingvarsson,
Tillagan var samþykkt með breytingum.
5. Kosning
nefnda
Eftirtaldir voru
einróma kjörnir í fastanefndir þingsins:
a)
Fjárhagsnefnd
Guðmundur Ingibersson,
Nes
Harpa Björnsdóttir, Ívar
Guðmundur Gíslason, ÍFR
b)
Kjörnefnd
Ísleifur Bergsveinsson, ÍFR
Gísli H. Jóhannsson, Nes
Ólafur Ólafsson, Ösp
c)
Laga
og Reglugerðanefnd
Þórður
Á. Hjaltested, Gáski
Guðrún
Árnadóttir, Snerpa
Þröstur
Guðjónsson, Akur
d)
Allsherjarnefnd
Leifur Karlsson, ÍFR
Ásta K.Helgadóttir, Suðri
Haukur Þorsteinsson, Eik
Karl Þorsteinsson fulltrúi Kjörbréfanefndar tók til máls og skýrði
niðurstöður nefndarinnar varðandi kjörbréf frá aðildarfélögunum.
ÍBR (ÍFR og Ösp) á rétt á 13 fulltrúum og 13 mættir
Gáski á rétt á 5 fulltrúum en þrír mættir
ÍRB (Nes), á rétt á 8 fulltrúum en 4 mættir
ÍBH (Fjörður) á rétt á 6 fulltrúum en 2 mættir
ÍA, (Þjótur) á rétt á 4 fulltrúum en 1 mættur
Kveldúlfur á rétt á 3 fulltrúum en 1 mættur
HSH (Stykkishólmur) á rétt á 3 fulltrúum og 3 mættir
ÍBS (Snerpa) á rétt á 4 fulltrúum en 3 mættir
Gróska á rétt á 4 fulltrúum en 3 mættir
ÍBA (Eik og Akur) á rétt á 9 fulltrúum og 9 mættir
HSK(Suðri og Gnýr) á rétt á 5 fulltrúum og 5 mættir
ÍBV(Ægir) sendi ekki fulltrúa
ÚÍA(Viljinn og Örvar) sendur ekki fulltrúa
Bocciadeild Völsungs sendi ekki fulltrúa
Þingfulltrúar ofangreindra félaga voru samþykktir
6. Lögð fram skýrsla stjórnar (fylgiskjal 1.0.)
Lögð fram skýrsla stjórnar.
Opnaðar voru umræður um skýrslu stjórnar.
Sveinn Áki bað fulltrúa að spyrja um þau atriði sem þeim finnst vanta
upplýsingar um. Þingforseti óskaði eftir því að umræður um skýrslu yrðu teknar
með umræðum um reikninga.
7. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar (fylgiskjal 2.0.)
Ólafur Magnússon fylgdi reikningum úr hlaði.
Reikningar 2000, 2001 og 2002, sjá fylgiskjal.
Þingforseti opnaði fyrir umræður um skýrslu og reikninga.
Engir kváðu sér hljóðs.
Reikningar 2000 voru
samþykktir samhljóða,
Reikningar 2001 voru
samþykktir samhljóða
Reikningar 2002 voru
samþykktir samhljóða
8. Lögð fram fjárhagsáætlun (fylgiskjal 3.0.)
Ólafur Magnússon gerði grein fyrir fjárhagsáætlun 2003 og 2004.
Vísað til Fjárhagsnefndar.
Umræður opnaðar vegna fjárhagsáætlunar.
Þórður Ólafsson, ÍFR lagði til við Fjárhagsnefnd að hún leggi til að
þátttökugjöld á Íslandsmótum verði lögð
niður.
Sveinn Áki sagði ástæðu þess að þátttökugjöld hefðu verið tekin upp væri sú
að þátttakendur hefðu á stundum ekki mætt til leiks þótt þeir hefðu verið
skráðir og hefði það skapað nokkur vandamál, sagði að fólk bæri yfirleitt meiri
virðingu fyrir hlutunum þegar það þyrfti að greiða fyrir, s.s. eins og þátttöku
á mótum.
Arnór Pétursson kom með þá tillögu að þátttökugjöld yrðu til staðar til að
hafa aðhald en eftir mót væru þau felld niður hjá þeim keppendum sem skráðir
voru til leiks og mættu á mótin.
Ólafur Magnússon benti á að þegar aðildarfelög hafa séð um framkvæmd
Íslandsmóta ÍF hafa þau fengið hluta af þátttökugjöldunum.
9. Lagðar fram laga- og reglugerðabreytingar
sem fram hafa komið.
a) Tillaga stjórnar ÍF vegna
dómsstóla(Fylgiskjal 4.0)
Þórður Árni gerði grein fyrir tillögunni.
b) Tillaga stjórnar ÍF vegna
Ólympíuráðs(Fylgiskjal 5.0)
Þórður Árni gerði grein fyrir tillögunni.
Arnór Pétursson tók til máls og lagði til að á milli þinga verði farið ofan
í þetta mál og niðurstöður og tillögur þar um verði kynntar í tíma fyrir næsta
þing.
c) Tillaga ÍFR vegna skráningu
Íslandsmeta(Fylgiskjal 6.0)
Þórður Ólafsson, ÍFR gerði grein fyrir tillögunni.
Vísað til Laga og reglugerðanefndar.
10. Önnur mál og aðrar tillögur sem borist hafa
til stjórnar ÍF.
Leikreglur í borðtennis lagðar fram til kynningar, fylgiskjal 7.0
Leikreglur í lyftingum lagðar fram til kynningar.
Leikreglur í boccia lagðar fram til kynningar.
11. Nefndir
starfa
Þingforseti bað
nefndir um að taka til starfa.
Matarhlé var gert
frá kl. 12:00-13:30.
12. Önnur mál
Sveinn Áki kom í
ræðustól og óskaði eftir umræðum um fyrirkomulag Íslandsmóta.
Ólafur Ólafsson
taldi að það þyrfti að gera breytingar á fyrirkomulaginu.
Ísleifur
Bergsveinsson var sammála Ólafi vegna Íslandsmótanna.
Arnór tók til
máls og kom víða við og byrjaði á að senda þingheimi kveðjur frá
framkvæmdastjórn Sjálfsbjargar.
Arnór var einnig
sammála því að breyta þyrfti fyrirkomulagi Íslandsmótanna.
Í þriðja lagi
minntist hann á gamla tillögu vegna bikarkeppni í boccia.
Í fjórða lagi
taldi Arnór að frá þinginu ætti að fara ályktun til fjölmiðla þar sem stríði í
Írak er mótmælt.
Guðrún Árnadóttir
vildi fá frekari útskýringar hvernig Læknakortin eiga að virka, s.s. hvort
leyfi sé fyrir því að láta upplýsingar um einstaklingana á þessi kort. Guðrún tók einnig undir með þeim sem töldu
breytingar á Íslandsmótum nauðsynlegar.
Þórður Árni tók
til máls og sagði að upphaflega hefði Íslandsmótunum verið breytt til að auka
fjölbreytni svo keppendur gætu valið á milli íþróttagreina og ekki stóð til að
leggja af vegleg lokahóf.
Þórður Árni
útskýrði læknakortin, öll kortin eru trúnaðargögn og eru eingöngu um þá
keppnisflokka sem viðkomandi tekur þátt í. Eingöngu starfsfólk og Læknaráð ÍF
hafa þessi gögn til umráða.
Ólafur Magnússon
tók til máls og sagðist ekki sammála hugmynd Arnórs um að ÍF eigi að senda frá
sér ályktun vegna stríðsins í Írak því hver og einn einstaklingur tæki
persónulega ákvörðun vegna þessa máls.
Ólafur Magnússon
bar kveðju frá Forseta Íslands, heilbrigðis-, félags- og
menntamálaráðherrum. Einnig var komið
til skila kveðjum frá formanni ÖBÍ, Ólafi Jenssyni og Sigurði Magnússyni,
fyrrverandi formönnum ÍF.
Anna K.
Vilhjálmsdóttir útskýrði Læknakortin ennfrekar. Íslandsmótin eftir 2003 verða líklega eins og þau voru áður,
samþykkt var að Íslandsmótin í sveitakeppni 2002 og 2003 yrðu haldin samhliða
Hængsmótinu á Akureyri.
Gísli H.
Jóhannsson, Nes, tók til máls og sagði að boccia væri vinsælasta greinin og
taldi fyrirkomulagið núna vera gott þar sem hægt væri að velja á milli greina
en lokahófin ættu að verða öðruvísi.
Gísli
minntist á starfsmannamál á frjálsíþróttamótum
ÍF, taldi að ekki ætti að þurfa að fá
þjálfara félaganna til að vera starfsmenn mótanna.
Sveinn Áki tók
til máls og sagðist ánægður með viðbrögð þingfulltrúanna vegna
Íslandsmótanna. Hvatti hann félögin til
að ræða um þessi mál meðal sinna félaga og síðan yrði þetta rætt enn frekar á
næsta Formannafundi.
Ólafur Magnússon
kynnti nýja reglugerð um verkefnasjóð ÍF sem var samþykkt á síðasta
Formannafundi að útbúa. Aðildarfélög
geta sótt um styrk í þennan sjóð en tekjur sjóðsins eru árleg fjárveiting
samkvæmt ákvörðun stjórnar ÍF, ósóttar lottógreiðslur óvirkra aðildarfélaga
samkv. 50 % úthlutunarreglunni, frjáls framlög og söfnunarfé og vaxtatekjur.
Sveinn Áki las
upp greinargerð vegna þessa sjóðs.
Margrét
Hallgrímsdóttir, Ösp, sagðist eiga dóttur sem hefur tekið þátt í Íslandsmótum ÍF í sundi en sagði að
hún hefði bara einu sinni farið á lokahóf tengt mótinu.
Halldór
Guðbergsson, ÍFR þakkaði fyrir góða skýrslu, en spurðist fyrir hvers vegna ekki
fleiri hreyfihamlaðir tækju þátt í Norræna barna- og unglingamótinu en raun ber
vitni ?
Halldór kom með
þá hugmynd að fá aukagreinar, íþróttir fatlaðra, inn sem sýningargrein á mótum
ófatlaðra, t.d. á frjálsíþróttamótum FRÍ og Sundsambandsmótum og að það yrðu
2-3 greinar sýndar í hvert skipti. Oft
er sýnt töluvert frá þessum mótum í sjónvarpi og væri þetta góð kynning fyrir
íþróttir fatlaðra.
13. Nefndaálit,
tillögur og atkvæðagreiðsla.
Talsmaður nefndarinnar, Þórður Árni Hjaltested tók til máls og skilaði
áliti nefndarinnar.
Fylgiskjal 4.0, nefndin lagði til að engar breytingar yrðu gerðar
við þessa tillögu.
Nefndin kom með eftirfarandi breytingartillögu við tillögu ÍF(fylgiskjal
5.0) um niðurfellingu Ólympíuráðs;
“11.
Sambandsþing ÍF samþykkir tillögu þess efnis að Ólympíuráð í þeirri mynd sem
við þekkjum það nú, verði lagt af. Þess
í stað verði skipað nýtt Ólympíusvið.
Það samanstendur af skipuðum fulltrúum afrekssviðs og fjármálasviðs ÍF
ásamt 2 kjörnum fulltrúum af sambandsþingi ÍF.
Ólympíusvið
starfar sem starfsnefnd, verkefni þess er undirbúningur vegna þátttöku í
Ólympíumótum.
Formaður
ÍF er formaður Ólympíusviðs.
Þetta fyrirkomulag tekur gildi nú þegar.”
Arnór tók til máls, vildi gera það að tillögu sinni að
þetta haldi áfram að heita Ólympíuráð.
Ísleifur er sammála Arnóri með heitið.
Tillaga Arnórs um að Ólympíusvið verði Ólympíuráð var
samþykkt með meirihluta atkvæða.
Tillagan í heild var SAMÞYKKT SAMHLJÓÐA (fylgiskjal
5.1).
Nefndin kom með eftirfarandi breytingartillögu við tillögu ÍF (fylgiskjal
6.0) um skráningu Íslandsmeta;
“Ályktun Sambandsþings ÍF 2003”, til
stjórnar ÍF
Lagt er til að Íslandsmet ÍF séu birt á heimasíðu ÍF og þau uppfærð reglulega, skv. 5. gr. reglugerðar fyrir Íslandsmót ÍF”.
Arnór kom fram með þá tillögu að það kæmi inn setning
inn í reglugerðina um að Afrekssvið ÍF
bæri ábyrgð á skráningum Íslandsmeta,
Þórður Árni taldi að nefndin bæri í rauninni ábyrgð á
þessu,
Arnór sagði að Afrekssviðið væri nær nefndunum en
stjórnin sjálf og teldi hann það betra ef Afrekssviðið væri gert ábyrgt vegna
þessara mála.
Sveinn Áki benti á að ekki væru allar nefndir undir
Afrekssviði en að stjórnin bæti traust til þeirra og hvatti nefndirnar til að
sinna þessu.
Anna Karólína sagði að hver nefnd myndi tilkynna
tengiliði vegna ýmissa atriða þannig að nefndirnar eru með tengilið til allra
sviða.
Tillaga Arnórs var felld.
Tillaga nefndarinnar var SAMÞYKKT ÁN BREYTINGA (Fylgiskjal
6.1).
Þórður Árni tók
til máls um reglugerð um Íslandsmót, sagði að það þyrfti að strika út
eftirfarandi setningu; “Aðlögunartími á gildistöku; Aðildarfélög ÍF skulu hafa
öðlast gild keppniskort fyrir alla keppendur sína fyrir 31.12.2002”.
Leifur Karlsson, talsmaður nefndarinnar tók til
máls. Engum málefnum var vísað til
nefndarinnar en nefndin fjallaði um hvernig staðið er að kjöri þingfulltrúa en
komst ekki að niðurstöðu, einnig vildi nefndin koma á framfæri eftirfarandi
tillögu;
“Sambandsþing leggur til við stjórn ÍF að hafa samráð
við stjórn ÍSÍ um að bogfiminefnd ÍSÍ verði endurvakin.”
Rök fyrir þessu eru að mikill fjöldi ófatlaðra æfir í
dag þessa íþrótt þannig að þörf á endurskoðun á reglum um íþróttina er mjög
brýnt.
Tillaga nefndarinnar var SAMÞYKKT SAMHLJÓÐA.
“Sambandsþing ÍF, haldið í Stykkishólmi 29. mars 2003
heimilar stjórn ÍF að setja í reglugerð um Íslandsmót ákvæði um að heimilt sé
að innheimta þátttökugjöld í samvinnu við mótshaldara hverju sinni”.
Tillagan var SAMÞYKKT SAMHLJÓÐA.
Nefndin leggur til að fjárhagsáætlun verði óbreytt.
Arnór, telur að lika sé heimilt að sleppa
þátttökugjöldunum ef vilji er fyrir því og þá telur hann að viðauki verði að
vera um að stjórn ÍF sé heimilt að fjárhagsáætlunin breytist þá með tilliti til
þess. Þingforseti tók til máls og
sagðist telja nóg að þetta kæmi fram í þingfundargerð.
Tillaga nefndarinnar um að fjárhagsáætlun verði lögð
fram óbreytt var
SAMÞYKKT SAMHLJÓÐA.
14. Ákveðið gjald ævifélaga
Þingforseti bar upp tillögu um að
ekki verði innheimt gjald frá
ævifélögum.
SAMÞYKKT SAMHLJÓÐA.
15. Kosning stjórnar,
varastjórnar, endurskoðenda, fulltrúa á íþróttaþing ÍSÍ
Eftirfarandi eru tillögur nefndarinnar:
Stjórn
ÍF;
Formaður, Sveinn Áki Lúðvíksson
Varaformaður; Camilla Th. Hallgrímsson
Þrír
meðstjórnendur; Kristján Svanbergsson - Ólafur Þ.
Jónsson - Þórður Árni Hjaltested.
Varastjórn, Erlingur Þ. Jóhannsson – Svava Árnadóttir – Jóhann Arnarson.
Tillaga um stjórn ÍF var SAMÞYKKT
SAMHLJÓÐA.
Skoðunarmenn
reikninga; Þórður Þorkelsson og Guðlaugur
Guðmundsson.
Fulltrúar
ÍF á ÍSÍ þingi; Formaður og varaformaður ÍF.
SAMÞYKKT
SAMHLJÓÐA
16. Kosnir fulltrúar í Ólympíuráð
Tillaga úr sal
var um Arnór Pétursson og Ólafur Eiríksson.
SAMÞYKKT SAMHLJÓÐA.
17. Þingfundargerðir lesnar og staðfestar
SAMÞYKKTað vísa þinggerð til stjórnar ÍF.
18. Þingslit
Nýendurkjörinn formaður ÍF, Sveinn Áki Lúðvíksson, þakkaði fyrrverandi stjórn góð störf og þakkaði traustið sem þingheimur sýndi honum.
ÓM óskaði SÁL til hamingju með endurkjörið sem
formaður ÍF.
ÓM tilkynnti um kvöldverð í boði bæjarstjórnar
Stykkishólms um kvöldið.
Þingforseti þakkaði samstarfið á þinginu og
því næst sagði hann Sambandsþingi ÍF 2003 slitið.
Þingforseti
________________________
Hafsteinn
Pálsson
Þingritari Þingritari
_________________________ ________________________
Anna G. Sigurðardóttir Kristín Guðmundsdóttir