![]() |
Upplýsingar um Special Olympics samtökin Samantekt júní 2010 |
![]() Aðalstyrktaraðili Special Olympics á Íslandi |
|
Special Olympics samtökin voru stofnuð af Kennedy fjölskyldunni í Bandaríkjunum árið 1968. Markmið þeirra er að bjóða upp á íþróttatilboð fyrir þroskaheft fólk og aðra þá sem eiga við námserfiðleika að stríða. Íþróttasamband Fatlaðra gerðist aðili að Special Olympics samtökunum árið 1989 og hefur síðan þá verið umsjónaraðili samtakanna á Íslandi. Samskipti Íslands og alþjóðasamtakanna byggja á kerfisbundnum ákvæðum um skil á árskýrslum og upplýsingum um ýmsa þætti starfsins á hverju ári. Starfsemi Special Olympics er rekin af sjálfstæðum samtökum í flestum löndum og í raun er gert skilyrði um slíkt. Ísland sótti um undanþágu til að geta samræmt starfsemina íþróttastarfi fatlaðra á Ísland og það var samþykkt af SOI. Íþróttakeppni á mótum Special Olympics er gjörólík öðrum íþróttamótum og ákveðin regla gildir um val einstaklinga í úrslitakeppni. Mjög strangar reglur gilda varðandi skráningarform keppenda og senda þarf mjög ítarlega upplýsingar um hvern keppenda til mótshaldara erlendis, hverju sinni. Special Olympics samtökin hafa hlotið leyfi IOC til að nota Olympic í nafn samtakanna en IPC þarf að skilgreina ólympíumót fatlaðra með orðinu Paralympic. Afreksfólk úr röðum fatlaðra tekur þátt í ólympíumóti fatlaðra en keppnisform á Special Olympics leikum byggir á þátttöku allra getuhópa. Mörgum þykir því sem leyfi IOC ætti fremur að hafa verið gefið IPC en SOI. Hjá SOI þarf að uppfylla ströng skilyrði um umgjörð og skipulag móta hvort sem um er að ræða alþjóðamót, smáþjóðaleika eða landsmót. Fáni leikanna er borinn inn af keppendum, lesinn er eiður SOI og eldur er kveiktur eins og á ólympíumótum. Allt skipulag þarf að taka mið af reglum SOI og gildir það bæði innan vallar sem utan. Verðlaunaafhending þarf að vera mjög formleg og tónlist er leikin við hverja afhendingu. Hér er um að ræða spennandi vettvang fyrir alla áhugasama íþróttaiðkendur í röðum þroskaheftra. Fjölmennasti hópurinn eru almennir iðkendur og nú hafa skapast tækifæri fyrir þennan hóp til að upplifa glæsilega íþróttaviðburði á vegum Special Olympics International og Special Olympics í Evrópu. Árið 2000 voru þátttakendur innan Special Olympics International um ein milljón en eru árið 2010 um þrjár og half milljón. Áhersla hefur verið lögð á að ná til fátækari landa og að skapa börnum þar tækifæri til íþróttaiðkunar. Ekki bara íþróttasamtök Ísland hefur þurft að sinna fjölmörgum verkefnum vegna aðildar að samtökunum, öðrum en þátttöku í íþróttaviðburðum, s.s. samvinnu vegna heildarskráninga á þátttakendum í aðildarlöndunum, samvinnuverkefni á sviði skólamála og samvinnuverkefni sem tengjast daglegu lífi þroskaheftra. Auk þessa eru sífellt að koma upp ný verkefni og Ísland reynir að sinna þessum þáttum eins og unnt er. Evrópudeild Special Olympics Í Brussel er nú rekin sérstök skrifstofa sem sér um verkefni Special Olympics í Evrópu og er tengiliður alþjóðasamtakanna við Evrópulönd. Áhrif Evrópu á uppbyggingu alþjóðasamtakanna hafa verið töluverð og lýðræði hefur aukist, sérstaklega á síðustu arum varðandi ákvarðanatöku og verkefnaval. Fjórir Evópufulltrúar eru starfandi og er fulltrúi Vestur Evrópu, Marian Murphy, Írlandi. Netfang hennar er westeuro@indigo.ie Sérstakt Evrópuráð, EELC ( European Leadershiop Council) er starfandi innan alþjóðasamtakanna, en hlutverk fulltrúa þess er m.a. að sinna ákveðnum málum sem upp koma innan Evrópu, auk þess sem hver fulltrúi hefur umsjón með ákveðnum löndum innan samtakanna. Ísland átti fulltrúa í Evrópuráðinu árin 2001 – 2008 en hlutverk hans var m.a. að vera tengiliður SOI og SOE við starfsemi Special Olympics á Norðurlöndunum. Framkvæmdastjórar Special Olympics, í hverju landi þurfa að sinna ákveðnum samstarfsverkefnum Evrópu, s.s. sækja Evrópuráðstefnu sem haldin er annað hvert ár, en þar er einnig venja að íþróttastjórar eða fulltrúar stjórna Special Olympics, taki þátt í dagskrá. |