Heimsmethafinn Markus Rehm gestur á Paralympic-deginum 2017


Paralympic-dagurinn fer fram laugardaginn 21. október næstkomandi. Það er Íþróttasambandi fatlaðra sönn ánægja að tilkynna að Markus Rehm, einn fremsti frjálsíþróttamaður heims úr röðum fatlaðra, verður sérstakur gestur okkar í ár.


Markus er heimsmethafi í langstökki í flokki F44 og lengsta stökk hans er 8,40 metrar, sem þýðir að hann er meðal þeirra allra bestu í heiminum, jafnt í flokki fatlaðra og ófatlaðra. Hann er einnig meðlimur í Team Össur, en það er hópur afreksíþróttamanna úr röðum fatlaðra. Þess má geta að Helgi Sveinsson, spjótkastari, er einnig meðlimur í Team Össur.

Paralympic-dagurinn er stórskemmtilegur kynningardagur á íþróttum fatlaðra á Íslandi og afar ánægjulegt að hafa með okkur jafn góðan gest. Við hvetjum alla til að leggja leið sína í Laugardalinn 21. október næstkomandi og kynna sér allt það helsta í íþróttum fatlaðra hérlendis. Hver veit nema okkur takist að fá Markus til að taka stökkið í frjálsíþróttahöllinni.

Hér má lesa nánar um Paralympic-daginn 2017
Viðburður fyrir Paralympic-daginn á Facebook