Hjörtur með nýtt Íslandsmet í 25m laug


Sundmaðurinn Hjörtur Már Ingvarsson setti á dögunum nýtt Íslandsmet í 50m baksundi á Jólamóti SH sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnarfirði.


Hjörtur setti metið í flokki S6 (hreyfihamlaðir) er hann kom í bakkann á tímanum 47,83 sek. Fyrra metið var einnig í eigu Hjartar frá því fyrr á þessu ári en það var 48,16 sek.