HM í frjálsum í London 2017


Heimsmeistaramót fatlaðra í frjálsum fer fram í London dagana 14.-23. júlí 2017. Í dag er því nákvæmlega eitt ár fram að móti. Miðasala á viðburðinn hefst þann 1. ágúst næstkomandi.

Mótið fer fram á Queen Elizabeth Olympic Park þar sem frjálsíþróttakeppnin á London Paralympics 2012 fór fram. Hér í tenglinum að neðan má lesa sér nánar til um mótið og þar er m.a. hægt að skrá sig sem sjálfboðaliða fyrir þá sem hefðu áhuga á því að starfa við svona stórviðburð.

http://www.london2017athletics.com/news/64250