HM í sundi í Mexíkó 2017



Heimsmeistaramót fatlaðra í sundi fer fram 29. september-7. október í Mexíkóborg í Mexíkó. Um stórviðburð er að ræða þar sem Mexíkóborg mun á sama tíma einnig standa fyrir heimsmeistaramóti fatlaðra í lyftingum en mótin munu standa í alls níu daga.

Gert er ráð fyrir að um 900 keppendur frá tæplega 70 þjóðlöndum verði á mótunum tveimur en mótin munu fara fram í sama húsnæði sem mun gera viðburðina mun aðgengilegri áhorfendum, keppendum og fjölmiðlum.