Helgi Evrópumeistari í spjótkasti!



Helgi Sveinsson, Ármann, er Evrópumeistari í spjótkasti í flokkum F42-44 eftir glæsilegan sigur á EM fatlaðra í frjálsum sem nú stendur yfir í Grosetto á Ítalíu.

Lengsta kast Helga í keppninni í dag var 55,42 m. sem er Evrópumeistaramótsmet í flokki F42.

Heimsmet Helga í flokknum hélt þó velli í dag en það er 57,36 m sem hann setti síðasta sumar.

Þá lauk Arnar Helgi Lárusson keppni á EM í dag þegar hann keppti í 100m spretti í wheelchair racing en hann kom í mark á tímanum 18.05 sek. og varð sjöundi í úrslitum.