Tíunda bæting Arnars á árinu og nýtt Íslandsmet



Arnar Helgi Lárusson setti áðan nýtt Íslandsmet í 400m hjólastólarace á Evrópumeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum sem fram fer á Ítalíu.

Arnar kom í mark á 1.03.91 mín. sem er tíunda persónulega bætingin hans á árinu og nýtt Íslandsmet eins og áður kemur fram.

Arnari tókst ekki að tryggja sér þátttökurétt í úrslitum sem fram fara í kvöld en hann keppir aftur á miðvikudag og þá í 100m race sem verður jafnframt síðasta keppnin hans á mótinu.

Heimasíða mótsins