Jón með nýtt heimsmet í Þýskalandi!


Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson, Fjölnir, er þessa dagana staddur í Þýskalandi á opna þýska meistaramótinu þar sem hann setti nýtt heimsmet í 800m skriðsundi í flokki S14!

Jón kom í bakkann á 8.48,24 mín. en gamli tíminn hans var 8.53,13 mín. svo um magnaða bætingu er að ræða. Þá setti Jón einnig nýtt Íslandsmet í 100m flugsundi á tímanum 1.00,17 mín.

Jón er ekki einn íslenskra keppenda ytra því Sonja Sigurðardóttir, ÍFR, hefur einnig sett nýtt Íslandsmet en það gerði hún í 100m baksundi í flokki S4 er hún kom í bakka á 2.14,50 mín.

Myndband af metasundi Jóns má sjá í tengli hér að neðan á 3 klst. og 37 mín og verðlaunaafhending að því loknu á 3 klst. og 59 mín. Strax að loknu sundi má einnig heyra viðtal við Jón Margeir þar sem hann segir m.a. frá því að laugin í Berlín sé í miklu uppáhaldi hjá sér.

Metasund Jóns/ viðtal og verðlaunaafhending

Til hamingju Jón og Sonja!